Skip to main content
30. október 2023

Hátt í 200 erindi á ráðstefnu Þjóðarspegilsins 2. og 3. nóvember

Hátt í 200 erindi á ráðstefnu Þjóðarspegilsins 2. og 3. nóvember - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þjóðtrú og lífsviðhorf Íslendinga, stjórnarskrárbreytingar, líðan, kulnun og tíðahvörf á vinnumarkaði, kynbundið ofbeldi, samfélagsmiðlar, hvalveiðar og dýrarvernd, frjósemi og vinnumarkaður og lífsstílshagfræði er meðal þess sem verður til umfjöllunar á hinni árlegu ráðstefnu Þjóðarspegilsins sem fram fer 2. og 3. nóvember í Háskóla Íslands. Húsnæðismál verða í brennidepli á opnunarmálstofu ráðstefnunnar.

Ráðstefna Þjóðarspegilsins er nú haldin í 24. sinn en hún hefur frá upphafi fóstrað fræðilega umræðu um það sem efst er á baugi innan félagsvísinda á afar breiðum grunni. Þátttakendur eru bæði fræðimenn og nemendur við Háskóla Íslands og aðra háskóla á Íslandi auk samstarfsaðila víða í íslensku samfélagi. 

opnunarmálstofa

Þátttakendur í opnunarmálstofu Þjóðarspegilsins.

Ráðstefna Þjóðarspegilsins hefst með opnunarmálstofu tengdri húsnæðismálum í Hátíðsal Aðalbyggingar fimmtudaginn 2. nóvember kl. 15 til 16.30. Stefán Hrafn Jónsson, forseti Félagsvísindasviðs, opnar ráðstefnuna og í kjölfarið mun Hulda Proppé, rannsóknastjóri sviðsins, halda erindi um mikilvægi ráðstefnu Þjóðarspegilsins fyrir samfélagið. Þá flytur Sigríður Benediktsdóttir, lektor við Viðskiptafræðideild HÍ og fræðimaður við hagfræðideild Yale-háskóla, erindið „Samspil fasteignalána, peningastefnu og fjármálastöðugleika“. Í framhaldinu verður boðið upp á pallborð um húsnæðismál þar sem Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við Lagadeild, og Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, taka þátt auk Sigríðar. Pallborðsumræðum stýrir Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptafræðideild. 

Viðburðurinn er öllum opinn og verður einnig í streymi.

Nokkrir fyrirlesara á ráðstefnu Þjóðarspegilsins segja frá erindum sínum.

Föstudaginn 3. nóvember verður svo boðið upp á um 200 erindi í rúmlega 40 opnum málstofum víða á háskólasvæðinu auk þess sem rannsóknir verða kynntar á veggspjöldum í Tröð, ganginum milli Háskólatorgs og Gimlis. Auk ofangreindra viðfangsefna verður m.a. fjallað um áskoranir lýðræðis, stjórnmál og sjávarútveg, fötlun og inngildingu í samtímanum, neyslu og sjálfbærni, stjórnarhætti fyrirtækja og stofnana, fjölmiðla, framhaldsskólann á tímum stefnubreytinga, nýsköpun og rekstur, heilsu og vellíðan á vinnustað, afbrot, ofbeldi og lögreglu, farsæld barna, COVID-19 og birtingarmyndir ástarinnar í nútímanum, svo fátt eitt sé talið til.

Dagskrá málstofanna stendur frá kl. 9-16.45 og er hægt að kynna sér efni þeirra á vef Þjóðarspegilsins.

Ráðstefna Þjóðarspegilsins er öllum opin og aðgangur ókeypis.

Þjóðarspegilinn ekki bara ráðstefna

Þjóðarspegilinn er ekki lengur einungis ráðstefna heldur vettvangur miðlunar félagsvísinda til samfélagsins alls. Á vef Þjóðarspegilsins má finna stutt myndbönd með viðtölum við félagsvísindafólk um rannsóknir þeirra. Þar má einnig finna hlaðvarpsseríur á vegum fræðafólks við Félagsvísindasvið. Vefsíða Þjóðarspegilsins er því orðin miðdepill samtals félagsvísinda við samfélagið allt árið um kring. 

Á Háskólatorgi