Skip to main content
27. júní 2022

Fjögur hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur við Lagadeild

Fjögur hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur við Lagadeild - á vefsíðu Háskóla Íslands

Laugardaginn 25. júní síðastliðinn brautskráðust frá Lagadeild Háskóla Íslands 74 einstaklingar við hátíðlega athöfn í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Á skólaárinu sem nú líður hafa 93 brautskráðst frá Lagadeild.

Að venju bauð Lagadeild til móttöku daginn fyrir brautskráningu þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur. Trausti Fannar Valsson, forseti Lagadeildar, ávarpaði boðsgesti en að því búnu voru veittar eftirtaldar viðurkenningar.

Steinunn Helga Björnsdóttir hlaut viðurkenningu Bókaútgáfunnar Codex fyrir að hafa í fyrstu tilraun staðist öll námskeið fyrsta árs í BA námi við Lagadeild með hæstu meðaleinkunn. Í viðurkenningarskyni færði bókaútgáfan Steinunni að gjöf allar námsbækur annars og þriðja árs í BA námi lögfræði sem gefnar eru út af Codex.

Guðjón Þór Jósefsson hlaut viðurkenningu Hollvinafélags Lagadeildar Háskóla Íslands fyrir hæstu einkunn á BA-prófi við Lagadeild meðal brautskráðra BA nema skólaárið 2020 til 2021. Einar Farestveit lögmaður og gjaldkeri Hollvinafélagsins afhenti Guðjóni af þessu tilefni verðlaun félagsins sem námu 150 þúsund kr.

Guðrún Gígja Sigurðardóttir hlaut viðurkenningu lögmannsþjónustunnar LOGOS fyrir hæstu einkunn á meistaraprófi við Lagadeild meðal brautskráðra meistaranema skólaárið 2020-2021. Benedikt Egill Árnason framkvæmdastjóri LOGOS afhenti Guðrúnu af þessu tilefni verðlaun frá lögmannstofunni sem námu 250 þúsund kr.

Þá veitti lögmannsstofan Lögmenn Lækjargötu ehf. verðlaun að upphæð 250 þúsund kr. í viðurkenningarskyni þeim stúdent sem skilaði bestu lokaritgerð til meistaraprófs í lögfræði á almanaksárinu 2021. Fjögurra manna dómnefnd sem var skipuð þremur fulltrúum Lagadeildar og einum fulltrúa frá Lögmönnum Lækjargötu mat þær ritgerðir sem komu til greina. Að þessu sinni varð fyrir valinu meistararitgerð Nadine Guðrúnar Yaghi „Barnaníðsefni. Ákvæði 210. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 “. Leiðbeinandi hennar var Ragnheiður Bragadóttir, prófessor. Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður afhenti verðlaunin fyrir hönd Lögmanna Lækjargötu.

Verðlaunahafar ásamt fulltrúum þeirra sem veita verðlaunin og deildarforseta Lagadeildar.
Trausti Fannar Valsson, deildarforseti Lagadeildar ásamt Steinunni Helgu Björnsdóttur.
Einar Farestveit ásamt Guðjóni Þór Jósefssyni.
Benedikt Egill Árnason ásamt Guðrúnu Gígju Sigurðardóttur
Sigurður Kári Kristjánsson ásamt Nadine Guðrúnu Yaghi.