Skip to main content
23. september 2016

Doktorsvörn Guðnýjar Gústafsdóttur

""

Föstudaginn 23. september ver Guðný Gústafsdóttir doktorsritgerð sína: Miðlað í gegnum meginstrauminn: Ímynd(ir) kvenleika og þegnréttar á Íslandi samtímans 1980-2000.  

Vörnin fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands kl 14:00 og er öllum opin. 

Andmælendur eru  dr. Karen Ross, prófessor í kynja- og fjölmiðlafræði við Háskólann í Newcastle, og dr. Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði, Menntavísindasviði Háskóla Íslands. 

Leiðbeinandi var dr. Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði, og í doktorsnefnd sátu auk Þorgerðar dr. Helga Kristín Hallgrímsdóttir, dósent við Háskólann í Viktoría í Kanada, og dr. Sigríður Matthíasdóttir, sjálfstætt starfandi sagnfræðingur við Reykjavíkurakademíuna. 

Athöfnin fer fram á ensku.

Ágrip af rannsókn

Ímynd kvenna á Íslandi samtímans hefur verið samofin kynjajafnrétti. Ímyndin á rætur í sögunni og var á síðustu áratugum styrkt með félagslegum athöfnum, svo sem kosningu Vigdísar Finnbogadóttur sem forseta árið 1980 og framboði Kvennalista til Alþingis. Þegar ímyndin er mátuð við stöðu kvenna kemur í ljós ákveðin mótsögn. Þrátt fyrir framgang kvenna, formlegt kynjajafnrétti, mikla menntun og atvinnuþátttöku, hafa völd og áhrif kvenna í hinu opinbera rými haldist takmörkuð. Í doktorsritgerðinni er leitast við að varpa ljósi á þessa mótsögn með því að greina hugmyndir um kvenleika og þann þegnrétt sem þeim fylgdi í orðræðu tímarita sem gefin voru út á tímabilinu 1980-2000. Ímynd hins kvenlega þegns á Íslandi samtímans er greind með hliðsjón af menningarbundnum, pólitískum og hugmyndafræðilegum áhrifavöldum.

Um doktorsefnið

Guðný Gústafsdóttir er fædd 14 maí 1962 í Neskaupstað. Hún stundaði nám í þýskum nútímabókmenntum, félagsfræði og norrænum bókmenntum við Alberts-Ludwig Universität Freiburg og Freie Universität Berlin í Þýskalandi. Hún lauk diploma í rekstrar- og viðskiptafræði 2001 og MA í kynjafræði frá Háskóla Íslands 2009. Synir Guðnýjar eru Elís Mar og Gústaf Berg. 

Dr. Baldur Þórhallsson deildarforseti stjórnar athöfninni og er öllum opin.  

Guðný Gústafsdóttir.
Guðný Gústafsdóttir.