Skip to main content
26. ágúst 2015

Anna María nýr sviðsstjóri starfsmannasviðs HÍ

""

Anna María Pétursdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri starfsmannasviðs Háskóla Íslands og hóf hún störf 10. ágúst síðastliðinn.

Anna María er með tvær meistaragráður, annars vegar í vinnusálfræði og hins vegar í fjármálum. Jafnframt er Anna María með B.Ed.-próf í kennslufræðum og hefur hún aflað sér viðbótarmenntunar í náms- og starfsráðgjöf og verkefnastjórnun. Áður en Anna María tók við núverandi stöðu hafði hún starfað m.a. sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs hjá Vífilfelli hf., sem starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar og starfsmannastjóri Seðlabanka Íslands.

Þá hefur Anna María starfað sem stundakennari á sviði stjórnunar og starfsmannamála bæði hjá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík og birt greinar á opinberum vettvangi á sviði nýsköpunar og starfsmannamála. Anna María hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja og tekið þátt í samnorrænum rannsóknum á sviði nýsköpunar.

Anna María er boðin hjartanlega velkomin til starfa við Háskóla Íslands.

Mynd af Önnu Maríu Pétursdóttir, nýjum sviðsstjóra starfsmannasviðs Háskóla Íslands
Mynd af Önnu Maríu Pétursdóttir, nýjum sviðsstjóra starfsmannasviðs Háskóla Íslands