Skip to main content

Vistspor Íslands - málþing

Vistspor Íslands - málþing - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. júní 2025 15:00 til 16:30
Hvar 

Norræna húsið, Sæmundargata 11, 101 Reykjavík

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Umhverfis- og auðlindafræði HÍ, Sjálfbærnistofnun HÍ og Festa: miðstöð um sjálfbærni, standa fyrir málstofu um vistspor Íslands í Norræna húsinu þann 12. júní klukkan 15.00.

Á málstofunni verða kynnt gögn um vistspor sem námsbraut í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands og York-háskóli í Toronto Kanada með styrk frá hinu Social Sciences and Humanities Research Council safna gögnum og meta vistspor fyrir öll lönd í heiminum í samvinnu við Global Footprint Network.   

Á málstofunni verður fjallað um gögn og greiningar sem liggja til grundvallar á mati á vistspori og framleiðni jarðarinnar auk greininga á „Earth Overshoot Day“ með sérstakri áherslu á vistspor Íslands. Sérstaklega verður fjallað um hvernig vistpor Íslands þróaðist frá 1961-2024 og hvað það er sem veldur því að vistspor Íslands er eitt það stærsta í heiminum. Einnig verður fjallað um hvernig lönd, sveitarfélög og fyrirtæki geta nýtt sér vistsporsmælingar til að draga úr álagi á vistkerfi jarðarinnar.  

Málþingið verður haldið á ensku og boðið verður upp á léttar veitingar.

Sjá frekari upplýsingar um vistsporsmælingar hér:
ecological-footprint
footprint-data-foundation
footprintpartnership

 

 

Málstofa um vistspor Íslands

Vistspor Íslands - málþing