Nýsköpun í þágu menntunar
Stakkahlíð / Háteigsvegur
þann 25. og 26. maí n.k. verður kastljósinu beint að nýsköpun í þágu formlegrar og óformlegrar menntunar. Fulltrúar skólafólks, fræðasamfélags, frumkvöðla og stefnumótenda munu leitast við að svara spurningum sem gera má ráð fyrir að varpi ljósi á möguleika til þróunar á skóla- og frístundastarfi á komandi árum:
- Hvernig skilgreinum við nýsköpun í þágu menntunar? Er hún frábrugðin annarri nýsköpun?
- Hvernig fer nýsköpun í þágu menntunar fram?
- Hver sinnir nýsköpun í þágu menntunar?
Föstudaginn 26. maí kl. 13-15, í salnum Bratti í Stakkahlíð, verður svo haldin ráðstefna um nýsköpun í menntun þar sem innlendir og erlendir sérfræðingar munu taka til máls.
Ráðstefnan er haldin af Nýsköpunarstofu menntunar í samstarfi við Samtök menntatæknifyrirtækja og er ætluð öllum þeim sem koma að fræðslu- og uppeldisstarfi, menntarannsóknum, stefnumótun og nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi í þágu menntunar.
Til að staðfesta þátttöku, vinsamlegast skráið ykkur hér.