Málþing meistaranema

Hvenær
2. október 2023 12:10 til 16:00
Hvar
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Hamri í Stakkahlíð
Nánar
Aðgangur ókeypis
Málþing meistaranema á Menntavísindasviði verður haldið mánudaginn 2. október í Stakkahlíð
Málþing meistaranema er haldið um vetur, vor og haust og nú er komið að meistaranemum sem brautskrást í októrber að kynna sín verk.
Dagskráin verður á 2. hæð í Hamri í Stakkahlíð og hefst kl. 12.10 með ávarpi.
Málstofur verða í stofum H-205 og H-209. Kynningar á meistaraverkefnum verða frá kl 12.25-16.00 með kaffihléi frá kl.14.-14.25.
Alls kynna fimmtán meistaranemar verkefni sín.
Dæmi um lokaverkefni eru:
- Hópefli í kennslu sem forvörn gegn einelti: Kennsluefni fyrir hópefli
- Að styðja við börnin mín í veikindum föður þeirra: Sjálfs-etnógrafía móður
- Foreldrar ungmenna þurfa meiri stuðning til að styðja markvisst við seiglu og farsæld barna sinna
- Sýn og reynsla ungmenna af því að búa til skiptis hjá foreldum á tveimur heimilum
- „Með fagmennskuna að leiðarljósi" Hlutverk og framtíðarsýn fagmenntaðra leiðsagnarkennara og hagnýting framhaldsnáms þeirra á vettvangi.
- Leiðsagnarkennarinn - Faglegur leiðtogi í lærdómssamfélagi grunnskóla
- „...svona skóli sem tekur eiginlega við öllumˮ Eðli forystu um nám og kennslu í blönduðum framhaldsskólum
- „Ef þér líður ekki vel, þá fer ekki fram neitt nám“. Hlutverk þroskaþjálfa í inngildandi grunnskólastarfi.
- Education, Ethnic Segregation, and Reconciliation in Bosnia and Herzegovina: A Narrative Inquiry into the Experiences of History Teachers / The Potential of Peace Education and Human Rights Education for Transformation
- Student Satisfaction in a HyFlex Course in Higher Education