Krossljóð

Veröld - Hús Vigdísar
2. hæð
Í tilefni af Alþjóðadegi ljóðsins efnir Vigdísarstofnun til samræðu um ljóðaþýðingar þriðjudaginn 21. mars í Veröld – húsi Vigdísar, 2. hæð.
Sigurbjörg Þrastardóttir ljóðskáld segir frá nýjustu bókinni sinni, Krossljóð, og samtali hennar við önnur ljóðskáld sem endurspeglast í bókinni.
Luciano Dutra ræðir um verkefni sitt þar sem hann þýðir norræn ljóðskáld yfir á portúgölsku og hvernig sú hugmynd kom til.
Hólmfríður Garðarsdóttir prófessor í spænsku við Háskóla Íslands fjallar um ljóðaþýðingar á „andspyrnuljóðum“ frá Rómönsku Ameríku yfir á íslensku.
Gísli Magnússon prófessor í dönskum bókmenntum stýrir umræðum.
Dagskráin fer fram á íslensku. Aðgangur ókeypis og öll velkomin!
Sigurbjörg Þrastardóttir, Luciano Dutra, Hólmfríður Garðarsdóttir og Gísli Magnússon ræða um ljóðaþýðingar í tilefni af Alþjóðadegi ljóðsins þann 21. mars í Veröld - húsi Vigdísar
