Hægt er að bóka viðtal hjá sálfræðingum HÍ með því að senda tölvupóst á salfraedingar[hja]hi.is. Miðað er við 1 til 3 viðtöl á misseri. Sálfræðiþjónustan heyrir undir Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands (NHÍ) og er staðsett á 3. hæð Háskólatorgs.
Anna Guðrún Guðmundsdóttir og Hrafnkatla Agnarsdóttir sálfræðingar veita ráðgjöf og stuðning í einstaklingsviðtölum sem eru gjaldfrjáls fyrir nemendur skólans. Þjónustan felur ekki í sér ADHD greiningu. Viðtölin geta farið fram á íslensku og ensku.
Anna Guðrún er klínískur sálfræðingur sem útskrifaðist með BSc í sálfræði frá Háskóla Íslands (HÍ) árið 2017 og MSc gráðu í klínískri sálfræði frá HÍ árið 2020. Anna hefur starfað með fullorðnum sem kljást við þunglyndi, streitu, kvíða og áhyggjuvanda, áfallastreitu og langvinna verki frá útskrift. Anna beitir aðferðum hugrænnar atferlismeðferar (HAM) auk áherslum úr ACT (Acceptance and Commitment Therapy) og hefur hlotið þjálfun í hugrænni úrvinnslumeðferð (HÚM).
Anna starfaði áður í geðteymi fullorðinna á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) 2020-2021. Síðar hjá Landspítala á árunum 2021-2025, fyrst í þunglyndis- og kvíðateymi geðsviðs og síðar í endómetríósuteymi kvennadeildar. Samhliða þessu hefur Anna verið í sjálfstæðum rekstri hjá Sálfræðiráðgjöfinni frá 2021. Anna Guðrún er í 50% starfshlutfalli hjá nemendaráðgjöf HÍ, með viðveru á mánudögum, þriðjudögum og til hádegis á föstudögum.
Hrafnkatla er klínískur sálfræðingur en hún útskrifaðist með BSc í sálfræði frá Háskóla Íslands (HÍ) árið 2018 og MSc gráðu í klínískri sálfræði frá HÍ árið 2020. Hún var í starfsnámi hjá Litlu Kvíðameðferðarstöðunni og sálfræðiráðgjöf háskólanema hjá HÍ.
Hrafnkatla hefur starfað sem sálfræðingur á göngudeild BUGL frá 2020 til 2022, fyrst í greiningarteymi og síðar í átröskunarteymi. Hún hóf sjálfstæðan rekstur árið 2021 hjá Sálfræðistofunni Höfðabakka og vinnur nú í 50% stöðu hjá Sálstofunni meðfram 50% stöðu hjá HÍ (frá 2022). Þá hefur hún einnig verið meðleiðbeinandi í lokaverkefni meistaranema í klínískri sálfræði, atferlisþjálfi á leikskóla og félagsliði á íbúðarkjarna fyrir geðfatlaða.
Hrafnkatla sinnir almennri sálfræðiþjónustu fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Hún sækir sér reglulega handleiðslu og endurmenntun, þá sérstaklega í átröskunum en hefur einnig gaman af því að vinna með tilfinningavanda líkt og kvíða og þunglyndi. Hún vinnur aðallega út frá meðferðarnálgun hugrænnar atferlismeðferðar en einnig ACT (Acceptance and Commitment Therapy) og díalektíska atferlismeðferð.
Hrafnkatla er í 50% starfshlutfalli og með viðveru á fimmtudögum, föstudögum og annan hvern miðvikudag fyrir hádegi.
Ef um bráðatilfelli er að ræða þá bendum við á: