Skip to main content
2. febrúar 2023

Styrkir til eflingar íslenskri tungu

Styrkir til eflingar íslenskri tungu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Styrktarsjóður Áslaugar Hafliðadóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Markmið og hlutverk sjóðsins er að styrkja málefni sem stuðla að eflingu íslenskrar tungu.

Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2023.

Styrkir skulu veittir starfsmönnum eða framhaldsnemum við Háskóla Íslands til sérverkefna á vegum skólans á sviði íslenskrar tungu er falla að þessu markmiði, s.s. til rannsókna, þróunar, kennslu, þjálfunar, nýmæla eða kaupa á tækjum og búnaði í þágu markmiða sjóðsins. Sérstaklega skal stutt við verkefni er lúta að ritfærni nemenda á öllum fræðasviðum skólans og til að þjálfa þá við að beita íslensku máli. Enn fremur skal stutt við verkefni sem styrkja stöðu íslensks máls í síbreytilegu tækniumhverfi.

Heildarfjárhæð úthlutunar árið 2023 er allt að kr. 10.000.000,-

Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:

  • Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
  • Helstu atriði úr náms- og starfsferilsskrá umsækjanda.
  • Heiti verkefnis, markmið og vísindalegt eða hagnýtt gildi.
  • Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
  • Veigameiri lýsing á verkefninu, að hámarki ein blaðsíða, þar sem fram kemur lýsing á markmiðinu með verkefninu, framkvæmd þess og mati á afrakstri, ásamt umfjöllun um hvernig verkefnið samrýmist markmiðum sjóðsins.
  • Tímaáætlun og fjárhagsáætlun verkefnis.
  • Ef um rannsóknarverkefni er að ræða skal gera grein fyrir helstu efnisþáttum þess.
  • Samstarfsaðilar og aðrir styrkaðilar verkefnis ef við á.
  • Hvernig styrkurinn verður notaður hljóti verkefnið styrk.
  • Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning.
  • Nöfn, símanúmer og netföng mögulegra meðmælenda.

Hámarkslengd umsóknar skal vera þrjár síður fyrir utan fylgiskjöl. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.

Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar. Með hliðsjón af eðli sjóðsins og stærð má gera ráð fyrir að vel afmörkuð verkefni sem ljúka má á 1–2 árum njóti forgangs. Framhaldsumsóknir kunna að þurfa að víkja fyrir nýjum umsóknum.

Styrkþegi skal gera grein fyrir stöðu verkefnisins að ári liðnu í framvinduskýrslu og láta fylgja sýnishorn/tilvísun í það sem hefur verið unnið. Að verkefni loknu skal skila lokagreinargerð um niðurstöður og árangur ásamt ráðstöfun fjárins og eigi síðar en tveimur árum frá styrkveitingu. Ef styrkur er ekki nýttur í samræmi við umsókn skal honum skilað. Ekki verður tekið við nýjum umsóknum frá þeim sem ekki hafa skilað framvinduskýrslu eða lokagreinargerð vegna fyrri styrkja á tilsettum tíma.

Áætlað er að úthlutun fari fram í mars 2023.

Umsóknum skal skila sem pdf-viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: sjodir@hi.is.

Um sjóðinn

Sjóðurinn var stofnaður árið 2013 af db. Áslaugar Hafliðadóttur, f. 22. ágúst 1929, d. 21. ágúst 2011, og erfingjum hennar, til minningar um hana og foreldra hennar, þau Sesselju Eiríksdóttur og Hafliða Jón Hafliðason.
Hægt er að styrkja sjóðinn með frjálsum framlögum, t.d. í tilefni brautskráningar eða árgangsafmæla. Fjárhæðir má leggja inn á bankareikning hjá Landsbankanum nr. 0111-26-5712 og merkja innborgunina sjóðnum. Kennitala Styrktarsjóða Háskóla Íslands er 571292-3199.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is, og á sjóðavef Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóri Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894.

Stúlka við tölvu