Skip to main content
27. maí 2021

Háskóli Íslands á lista Shanghai Ranking fimm ár í röð

Háskóli Íslands á lista Shanghai Ranking fimm ár í röð - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands er samtals á 14 listum yfir fremstu skóla heims á afmörkuðum fræðasviðum samkvæmt hinum virta lista Shanghai Global Ranking of Academic Subjects fyrir árið 2021 sem birtur var í gær. Skólinn er áfram í allra fremstu röð á sviði fjarkönnunar og í hópi þeirra 45 bestu á sviði rafmagns- og tölvuverkfræði. Skólinn hefur nú verið einn íslenskra háskóla á listanum fimm ár í röð.

Samtökin ShanghaiRanking Consultancy hafa um árabil birt lista yfir fremstu háskóla heims á afmörkuðum fræðasviðum og jafnframt lista sem tekur mið af heildarframmistöðu þeirra, svonefndan Shanghai-lista. Við röðun háskóla á listana styðjast samtökin við ýmsa þætti í starfsemi þeirra, þar á meðal birtingu vísindagreina í virtum fræðitímaritum, fjölda tilvitnana annarra vísindamanna í rannsóknir á vegum skólans,  alþjóðlegt samstarf, frammistöðu háskóla út frá starfsmannafjölda og fjölda starfsmanna sem hjóta vísindaverðlaun fyrir framlag sitt innan einstakra fræðagreina.

ShanghaiRanking Consultancy birti í gærmorgun lista yfir fremstu háskóla heims á yfir 50 ólíkum fræðasviðum en mat samtakanna náði til alls 4.000 háskóla víða um heim og komust 1.800 þeirra á einhvern af listunum að þessu sinni. 

Samkvæmt listunum í ár er Háskóli Íslands sá sjöundi besti í heiminum á sviði fjarkönnunar en hann hefur verið meðal 10 bestu á því sviði frá því að byrjað var að birta þessa lista árið 2017.

Samkvæmt listunum í ár er Háskóli Íslands sá sjöundi besti í heiminum á sviði fjarkönnunar en hann hefur verið meðal 10 bestu á því sviði frá því að byrjað var að birta þessa lista árið 2017. Fjarkönnun felst m.a. í því að taka stafrænar myndir úr flugvélum og gervitunglum og vinna úr þeim hvers kyns upplýsingar um yfirborð jarðarinnar. 

Háskólinn er í 45. sæti yfir þá fremstu á sviði rafmagns- og tölvuverkfræði og í hóp 75 bestu á sviði hjúkrunarfræði. Enn fremur er hann í hópi þeirra 150 fremstu á sviði jarðvísinda, í sæti 151-200 á sviði lífvísinda, í 200.-300. sæti innan ferðamálafræði, lýðheilsuvísinda, landfræði, líffræði mannsins og stjórnmálafræði og í hópi 400 bestu á sviði loftslagsvísinda. Enn fremur skilar frammistaða skólans honum í hóp 500 bestu á sviði sálfræði, klínískrar læknisfræði og vistfræði.

Shanghai-listinn er annar af tveimur virtustu og áhrifamestu matslistunum yfir bestu skóla heims. Hinn er Times Higher Education World University Rankings og hefur Háskóli Íslands verið á honum í áratug.
Lista ShanghaiRanking Consultancy sem nær til fræðigreina og upplýsingar um grundvöll matsins má nálgast á heimasíðu ShanghaiRanking Consultancy.