Skip to main content
28. nóvember 2022

Ný bók um fræga sögustaði

Ný bók um fræga sögustaði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Út er komin bókin Á sögustöðum eftir Helga Þorláksson, prófessor emeritus í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands. 

Í bókinni er fjallað um sex fræga sögustaði: Bessastaði á Álftanesi, Hóla í Hjaltadal, Odda á Rangárvöllum, Reykholt í Borgarfirði og Skálholt og Þingvelli í Árnessýslu. Rakin er saga staðanna og reynt að grennslast fyrir um það á hverju hlutverk þeirra byggist.

Í bókarkynningu segir að hugmyndir okkar um sögustaðina sex mótist af þjóðernisrómantík á 19. og 20. öld, aðdáun á gullöld sem gat orðið að gullaldarglýju. „Þjóðernishyggjunni fylgdi svo andúð á erlendu valdi og erlendum áhrifum í ýmsum myndum. Þótt nærri 80 ár séu frá því að lýðveldið var stofnað eimir enn eftir af viðhorfum til manna, staða og málefna sem urðu til í sjálfstæðisbaráttunni, þar sem hið innlenda og þjóðlega þykir æskilegt en flest erlent og alþjóðlegt óæskilegt. Það er sannarlega kominn tími á gagngert endurmat. Þess er að vænta að afstaða margra muni breytast við lestur bókarinnar þar sem almenn menningarsaga fær að vega þyngra en bjöguð stjórnmálasaga.“

Helgi Þorláksson hefur skrifað fjölda greina og bóka, þ.á m. bækurnar Frá kirkjuvaldi til ríkisvalds, Sjórán og siglingar og Vaðmál og verðlag. Þá var bókin Leiðarminni, úrval sagnfræðigreina eftir Helga, gefin út árið 2015 í tilefni af 70 ára afmæli Helga.

Helgi Þorláksson með bókina Á sögustöðum.