PRICE fyrirlestur um minnkandi fæðingartíðni

Hvenær
12. júní 2025 12:00 til 13:30
Hvar
Þjóðminjasafnið
Nánar
Aðgangur ókeypis
Minnkandi fæðingartíðni veldur áhyggjum í ýmsum ríkjum heims, og umræðan um offjölgun sem var áberandi í fyrri tíð hefur snúist upp í andstöðu sína. Búist er við fólksfækkun í flestum ríkjum heims fyrir árið 2100. Hverjir eru orsakavaldar?
Klaus Felix Zimmermann prófessor emeritus í hagfræði við Háskólann í Bonn flytur fyrirlesturinn.
Eftir að Klaus hefur lokið fyrirlestri sínum mun Vilmundur Torfason, BS nemi í hagfræði, segja frá niðurstöðum rannsóknar á frjósemi á Íslandi.
Klaus Felix Zimmermann prófessor emeritus í hagfræði við Háskólann í Bonn flytur fyrirlesturinn.
