Nýsköpun í þágu hins opinbera – Nýsköpunarmót Ríkiskaupa

Veröld - Hús Vigdísar
Ráðstefnusalur
Hefur þú áhuga á að leysa áskoranir hins opinbera? Ertu að vinna í nýsköpun sem gæti nýst ríki eða sveitarfélögum? Eða ertu jafnvel að vinna hjá hinu opinbera og vilt vita hvaða nýskapandi lausnir eru til? Á nýju og endurbættu Nýsköpunarmóti Ríkiskaupa sem hefur göngu sína með viðburði á Litla torgi Háskólatorgs þriðjudaginn 29. nóvember kl. 8.30 verður fjallað um þá möguleika sem felast í opinberri nýsköpun.
Nýsköpunarmótið færir opinbera aðila og nýsköpunar- og sprotafyrirtæki að sama borði til að ræða áskoranir og leita lausna. Með virku samtali milli hins opinbera og markaðarins er leitast við að auka gæði opinberra innkaupa og stuðla að auknum innkaupum á nýsköpun.
Um er að ræða fyrsta viðburðinn í viðburðaröð þar sem fjallað er um áskoranir og tækifæri í nýsköpun hjá hinu opinbera en hann er haldinn í framhaldi af samstarfssamningi sem Háskóli Íslands og Ríkiskaup gerðu á þessu sviði á dögunum.
Skráning á Nýsköpunarmótið fer fram á vef Ríkiskaupa
Nánar um Nýsköpunarmót og áskoranir opinberra aðila
Dagskrá Nýsköpunarmótsins á Litla Torgi
Setningarávarp ráðherra
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra
Af hverju Nýsköpunarmót?
Stefán Þór Helgason, sviðsstjóri nýsköpunar og viðskiptaþróunar Ríkiskaupa
Nýtt og endurbætt Nýsköpunarmót: Hugmyndafræði, tilurð og markmið.
Hvernig kaupum við nýsköpun?
Sveinbjörn Ingi Grímsson, sérfræðingur í opinberri nýsköpun
Kynning á innkaupaleiðum fyrir nýsköpun á mannamáli.
Áskoranir hins opinbera í leit að nýskapandi lausnum
Framtíð launaseðla
Sigurjón Einar Þráinsson, Fjársýsla ríkisins
Matarapp ríkisins
Hildur Guðný Guðlaugsdóttir, Ríkiskaup
Stafræn starfsmannakort
Sigurjón Ólafsson, Hafnarfjarðarbær
Heimaspítali fyrir aldraða
Guðný Stella Guðnadóttir, Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Anna Margrét Magnúsdóttir
Margrét Ólafsdóttir
Hermann Marino Maggýjarson
Léttar veitingar verða í boði og sérstakt tækifæri gefst svo til tengslamyndunar að erindum loknum.