Skip to main content

Umhverfisfræði, doktorsnám

Umhverfisfræði

180 einingar - Doktorspróf

. . .

Námið er þriggja ára rannsóknatengt framhaldsnám í umhverfisfræði við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild.

Námið byggir á 180 eininga rannsóknarverkefni. Doktorsnefnd getur gert kröfu um að nemandi ljúki einnig námskeiðum.

Nemendur með MS-próf í umhverfis- og auðlindafræði, verkfræði eða náttúruvísindum geta fengið inngöngu að fullnægðum tilteknum forkröfum.

Um námið

Doktorsnámið felst einkum í rannsókn sem lýkur með 180 eininga doktorsritgerð. Doktorsnefnd getur gert kröfu um að nemandi í doktorsnámi ljúki einnig námskeiðum. Einingar fyrir námskeið bætast þá við námið. Námskeiðin eru framhaldsnámskeið sem valin eru í samráði við umsjónarkennara.

Reiknað er með að nemendur séu í fullu þriggja ára námi.

Nánar um hæfniviðmið í kennsluskrá.

Inntökuskilyrði

Framhaldsnám

MS-próf eða jafngilt í verkfræði, náttúruvísindum, umhverfisfræðum, skipulagsfræðum eða arkitektúr.

Umsækjendur um doktorsnám þurfa að vera komnir með leiðbeinanda og hugmynd að verkefni áður en sótt er um nám. Nemendum er bent á að hafa samband við kennara á því fagsviði sem þeir hafa hug á í sínu framhaldsnámi.

Hafðu samband

Nemendaþjónusta VoN
s. 525 4466 - ​nemvon@hi.is
Opið virka daga frá 09:00-15:30

Tæknigarður - Dunhaga 5, 107 Reykjavík
Askja - Sturlugata 7, 102 Reykjavík

Fylgstu með Verkfræði- og náttúruvísindasviði

 Instagram  Twitter  Youtube

 Facebook  Flickr