Skip to main content

Stjórn og starfsfólk meistaranáms í talmeinafræði

Rektor skipar stjórn meistaranáms í talmeinafræði til þriggja ára í senn. Stjórnin er skipuð sex fulltrúum samkvæmt tilnefningum Íslensku- og menningardeildar, Menntavísindasviðs, Sálfræðideildar og Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands, einum föstum kennara greinarinnar og fulltrúa úr Læknadeild.

Námsstjórn ber faglega ábyrgð á náminu í umboði þeirra deilda og þess fræðasviðs sem aðild eiga að því. Námsstjórn fer með öll sameiginleg málefni námsins, skipuleggur það og hefur yfirumsjón með því.

Námsstjórnin tryggir gæði námsins m.a. með því að yfirfara og samþykkja umsóknir, samþykkja skipulag námsins og breytingar á því, áætluð rannsóknaverkefni, skipa leiðbeinendur og menn í meistaranámsnefnd og tilnefna prófdómara fyrir meistarapróf.

Námsleið í Talmeinafræði er vistuð í Læknadeild sem hefur umsjón með henni og brautskrást nemendur þaðan. Í stjórn áranna 2020- 2023 sitja:

Fulltrúi læknadeildar og formaður námsstjórnar

Mynd af Þórarinn GuðjónssonÞórarinn GuðjónssonPrófessor5254827tgudjons [hjá] hi.is

Fulltrúi Íslensku- og menningardeildar

Mynd af Anton Karl IngasonAnton Karl IngasonDósentantoni [hjá] hi.is

Varamaður Íslensku- og menningardeildar er Sigríður Sigurjónsdóttir

Fulltrúi Menntavísindasviðs

Mynd af Jóhanna Thelma EinarsdóttirJóhanna Thelma EinarsdóttirPrófessor5255569jeinars [hjá] hi.is

Fulltrúi Sálfræðideildar

Mynd af Guðmundur Ágúst SkarphéðinssonGuðmundur Ágúst SkarphéðinssonPrófessor5255573gskarp [hjá] hi.is

Fulltrúi Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands
Kristín T. Þórarinsdóttir, talmeinafræðingur

Fulltrúi fastra kennara

Mynd af Þóra MásdóttirÞóra MásdóttirDósent5255506tm [hjá] hi.is

Læknadeild annast umsýslu námsins, svo sem upplýsingagjöf til nemenda, tilkynningar, frágang kennsluskrár og slík atriði. 

Verkefnastjóri námsleiðar í Talmeinafræði

Mynd af Anna Ellen DouglasAnna Ellen DouglasVerkefnisstjóri5255442annaellen [hjá] hi.is
Tenglar á síður deilda