Skip to main content

Reglur um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022

Reglur um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands, nr. 331/2022.

Með síðari breytingum

PDF-útgáfa

EFNISYFIRLIT

I. KAFLI

1. gr.  Almennt.

Nemendur sem hefja grunnnám til fyrstu háskólagráðu í Háskóla Íslands skulu hafa lokið stúdentsprófi eða öðru lokaprófi á þriðja hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Deildir geta bundið aðgang að námsleiðum frekari skilyrðum, svo sem nánar greinir í 3.–29. gr. reglna þessara.

Þeir sem lokið hafa eins árs námi (60 ECTS-einingum) frá viðurkenndum háskóla eða viðurkenndum skóla á háskólastigi geta talist uppfylla almenn inntökuskilyrði í grunnnám skv. 1. mgr., enda þótt þeir hafi ekki lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Um inntöku þeirra fer nánar eftir 3.–29. gr. þessara reglna.

Um undanþágur frá skilyrðinu um stúdentspróf fer samkvæmt ákvæðum sameiginlegra reglna háskólans og nánari ákvörðunum háskólaráðs.

Um inntökuskilyrði í nám á meistara- og doktorsstigi gilda sérreglur deilda, sem háskólaráð hefur sett og birtar eru í kennsluskrá og á vefsetrum deilda.

2. gr.  Upplýsingar um inntökuskilyrði.

Upplýsingum um inntökuskilyrði deildar skal komið á framfæri í kennsluskrá, á vefsetri háskólans og í kynningarefni til nýrra nemenda. Skal skýrt tekið fram að inntökuskilyrði geti verið mismunandi milli deilda og námsleiða, þannig að skráning í eina deild eða námsleið veiti ekki sjálfkrafa rétt til skráningar í aðra.

Við upplýsingagjöf um inntökuskilyrði í grunnnám skulu leiðbeiningar enn fremur veittar um frekari undirbúning sem deild telur æskilegan fyrir einstakar námsleiðir, með vísan til einingafjölda í tilteknum grunngreinum mennta- eða framhaldsskólanáms eða annarra atriða.

Í þessum reglum er með hugtakinu eining átt við framhaldsskólaeiningu eins og hún er skilgreind í aðalnámskrá framhaldsskóla 2011. Um háskólaeiningar er notað hugtakið ECTS-einingar.

II. KAFLI  Inntökuskilyrði deilda á Félagsvísindasviði.

3. gr.  Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.

Til að hefja nám í félagsfræði skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi skulu teljast sambærileg stúdentsprófi hafi umsækjandi lokið a.m.k. 170 einingum, þar af a.m.k. 25 einingum í íslensku og 25 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein) og 10 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi). Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-nám í félagsfræði.

Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið a.m.k. 10 einingum í stærðfræði og 15 einingum í ensku.

Til að hefja nám í mannfræði eða þjóðfræði skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Til inntöku í BA-nám í mannfræði eða þjóðfræði eru jafnframt viðurkennd önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi, hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-nám í mannfræði eða þjóðfræði.

Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra nemenda.

4. gr.  Félagsráðgjafardeild.

Til að hefja nám við Félagsráðgjafardeild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi skulu teljast sambærileg stúdentsprófi, hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) telst sambærilegt stúdentsprófi og nægir til inntöku í BA-nám í deildinni, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hug- eða félagsvísindum.

Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra nemenda.

5. gr.  Hagfræðideild.

Til að hefja BS- og BA-nám við Hagfræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu prófi að mati deildarinnar. Lokapróf frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólabrú Keilis nægja til inngöngu í Hagfræðideild til jafns við stúdentspróf, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hagfræði. Stúdentspróf að lokinni viðskiptabraut og viðbótarnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, teljast sambærileg stúdentsprófi af bóknámsbraut og nægja til inntöku í BS- og BA-nám í deildinni.

6. gr.  Lagadeild.

Til að hefja BA-nám við Lagadeild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Til inntöku í BA-nám eru jafnframt viðurkennd önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) nægja einnig til inntöku í BA-nám í deildinni.

Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af bóknámsbraut eða jafngilt nám, með áherslu á kunnáttu og færni í íslensku máli. Jafnframt er æskilegt að nemendur hafi tileinkað sér þekkingu á dönsku, norsku eða sænsku.

7. gr.  Stjórnmálafræðideild.

Til að hefja nám við Stjórnmálafræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi skulu teljast sambærileg stúdentsprófi hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-nám í deildinni.

Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af bóknámsbraut eða jafngilt nám, með áherslu á kunnáttu og færni í íslensku máli.

8. gr.  Viðskiptafræðideild.

Til að hefja BS-nám við Viðskiptafræðideild skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða öðru prófi af þriðja hæfniþrepi með a.m.k. 25 einingum (15 gömlum framhaldsskólaeiningum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla 1999 eða fyrr) í ensku og íslensku (þar af a.m.k. 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein) og a.m.k. 20 einingum (12 gömlum framhaldsskólaeiningum) í stærðfræði (þar af a.m.k. 5 einingum á þriðja hæfniþrepi).

Þá teljast þeir einnig uppfylla inntökuskilyrði Viðskiptafræðideildar sem lokið hafa einhverri af þremur eftirfarandi aðfararnámsbrautum:

  1. viðskiptafræðigrunni háskólagrunns Háskólans í Reykjavík;
  2. viðskipta- og hagfræðideild við háskólabrú Keilis;
  3. háskólagátt frá Háskólanum á Bifröst, enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V.

Ákvæði þessarar greinar taka gildi við inntöku nemenda í grunnnám við Viðskiptafræðideild háskólaárið 2025–2026. Fram að þeim tíma gilda eldri reglur nr. 319/2009 um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.

III. KAFLI  Inntökuskilyrði deilda á Heilbrigðisvísindasviði.

9. gr.  [Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.]1

Til að hefja nám við [Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild]1 skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Þá nægir lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis til inngöngu í [Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.]1 Nemendur sem lokið hafa aðfararnámi að öðrum háskólum en Háskóla Íslands geta sótt um undanþágu frá þessum inntökuskilyrðum. Ef undanþága er samþykkt eru þeir umsækjendur jafnsettir þeim er uppfylla formleg skilyrði við val nemenda í námið, sbr. reglur nr. 24/2015.

Æskilegur undirbúningur samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 er: þriðja hæfniþrep í íslensku, ensku og stærðfræði. Auk þess er mælt með því að nemandi hafi lokið 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í efnafræði og/eða stærðfræði og 5 einingum á þriðja hæfniþrepi í líffræði.

Nemendur sem lokið hafa námi í hjúkrunarfræði frá erlendum háskólum og hafa fengið hjúkrunarleyfi í heimalandi geta sótt um undanþágu frá því að gangast undir samkeppnispróf í [Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.]1 Sviðsstjóri kennslusviðs tekur ákvörðun um hvort fallist er á undanþágubeiðni, að fenginni umsögn deildar, sbr. einnig ákvæði 47. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 um inntöku stúdenta. Við mat á umsókn um undanþágu er tekið mið af fyrra námi umsækjanda og umsögn frá embætti landlæknis um hæfi umsækjanda til að fá íslenskt hjúkrunarleyfi, þ.e. hvaða námskeið eða klíníska þjálfun umsækjanda vantar til að fá íslenskt hjúkrunarleyfi.

[Til að hefja nám í hjúkrunarfræði fyrir fólk sem lokið hefur öðru háskólaprófi skal umsækjandi hafa lokið bakkalárprófi með lágmarkseinkunninni 6,5.]2

1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 512/2022.
2Breytt með 1. gr. rgl. nr. 1528/2023.

10. gr.  Lyfjafræðideild.

Til að hefja nám við Lyfjafræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá háskólabrú Keilis eða háskólagrunni Háskólans í Reykjavík nægir til inngöngu í Lyfjafræðideild, enda hafi viðkomandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild eða tækni- og verkfræðigrunn.

Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af náttúrufræðibraut með efnafræði sem kjörsvið, með áherslu á efnafræði og stærðfræði. Auk þess er mælt með því að nemandi taki áfanga af kjörsviðum líffræði og eðlisfræði. Ef nám er stundað á öðrum bóknámsbrautum, þ.e. félagsfræði- eða málabraut, er æskilegt að nemandi bæti við sig áföngum sem veita sambærilegan undirbúning í efnafræði og stærðfræði, auk eðlisfræði og líffræði.

11. gr.  Læknadeild.

Til að hefja nám við Læknadeild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Nemendur sem lokið hafa prófi frá tækni- og verkfræðigrunni háskólagrunns Háskólans í Reykjavík eða verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar.

Nemendur eru teknir inn í nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun á grundvelli inntökuprófs samkvæmt nánari reglum þar að lútandi. Inntökuprófið byggist að hluta á námsefni framhaldsskóla, en einnig reynir á almenna þekkingu, siðfræðilega afstöðu og rökhugsun.

12. gr.  Matvæla- og næringarfræðideild.

Til að hefja nám í matvælafræði og næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi. Önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi skulu teljast sambærileg stúdentsprófi hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum á þriðja hæfniþrepi. Nemendur sem lokið hafa prófi frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar. Lokapróf frá háskólabrú Keilis telst sambærilegt stúdentsprófi, enda hafi viðkomandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild háskólabrúar.

Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af náttúrufræðibraut.

Um undanþágur frá skilyrðunum um stúdentspróf fer samkvæmt ákvæðum sameiginlegra reglna háskólans og nánari ákvörðunum háskólaráðs.

13. gr.  Sálfræðideild.

Til að hefja nám við Sálfræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu erlendu prófi. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BS-nám í deildinni.

Æskilegur undirbúningur er þriðja hæfniþrep í íslensku, ensku og stærðfræði.

Ákvæði þessarar greinar taka gildi við inntöku nemenda í grunnnám við Sálfræðideild háskólaárið 2025–2026. Fram að þeim tíma gilda eldri reglur nr. 319/2009 um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.

14. gr.  Tannlæknadeild.

Til að hefja nám í tannlæknisfræði við Tannlæknadeild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Nemendur sem lokið hafa prófi frá tækni- og verkfræðigrunni háskólagrunns Háskólans í Reykjavík eða verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar.

Til að hefja nám í tannsmíði við deildina skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá háskólabrú Keilis telst sambærilegt stúdentsprófi.

Æskilegur undirbúningur er góð þekking í líffræði og eðlis- og efnafræði.

IV. KAFLI  Inntökuskilyrði deilda á Hugvísindasviði.

15. gr.  Mála- og menningardeild.

Til að hefja nám við Mála- og menningardeild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi skulu teljast sambærileg stúdentsprófi, hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í grunnnám í deildinni.

Umsækjendur með erlend próf, sem ekki hafa ensku að móðurmáli, þurfa að sýna fram á kunnáttu sína í ensku með TOEFL-prófi (lágmarkseinkunn 93 ef sótt er um nám til bakkalárprófs í ensku, en 79 ef sótt er um í aðrar greinar) eða IELTS-prófi (lágmarkseinkunn 7 ef sótt er um nám til bakkalárprófs í ensku, en 6,5 ef sótt er um í aðrar greinar).

Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra nemenda.

16. gr.  Guðfræði- og trúarbragðafræðideild.

Til að hefja nám við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi skulu teljast sambærileg stúdentsprófi, hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í grunnnám í deildinni.

Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af bóknámsbraut, með áherslu á íslensku, dönsku, ensku, sagnfræði og greinar félagsvísinda.

17. gr.  Íslensku- og menningardeild.

Til að hefja nám við Íslensku- og menningardeild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi skulu teljast sambærileg stúdentsprófi, hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í grunnnám í deildinni.

Til að hefja nám til BA-prófs í íslensku sem öðru máli þarf nemandi enn fremur að standast lágmarkskröfur á stöðuprófi sem haldið er fyrir upphaf hvers háskólaárs. Umsækjendur um hagnýtt nám í íslensku sem öðru máli, sem ekki hafa ensku að móðurmáli, þurfa að sýna fram á kunnáttu sína í ensku með TOEFL-prófi (lágmarkseinkunn 79) eða IELTS-prófi (lágmarkseinkunn 6,5).

Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra nemenda.

18. gr.  [Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði.]1

Til að hefja nám við [Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði]1 skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi skulu teljast sambærileg stúdentsprófi, hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í grunnnám í deildinni.

Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra nemenda.
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 512/2022.

V. KAFLI  Inntökuskilyrði deilda á Menntavísindasviði.

19. gr.  Deild faggreinakennslu.

Til að hefja B.Ed.-nám í Deild faggreinakennslu skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í B.Ed.-nám í deildinni.

Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra nemenda.

Til að hefja diplómanám í kennslufræði fyrir iðnmeistara á bakkalárstigi í Deild faggreinakennslu skal nemandi hafa lokið meistararéttindum í iðngrein eða löggiltu starfsréttindaprófi úr framhaldsskóla.

Til að hefja B.Ed.-nám í kennslufræði verk- og starfsmenntunar í Deild faggreinakennslu skal nemandi hafa lokið meistararéttindum í iðngrein eða löggiltu starfsréttindaprófi úr framhaldsskóla. Nemandi þarf einnig að hafa lokið annaðhvort (a) stúdentsprófi eða (b) diplómanámi í kennslufræði á bakkalárstigi í Kennaradeild (frá 1. júlí 2018 nefnd Deild faggreinakennslu) og hafa fimm ára starfsreynslu í greininni.

20. gr.  Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda.

Til að hefja BA-, B.Ed.- eða BS-nám skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-, B.Ed.- og BS-nám í deildinni.

Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Að auki þurfa þeir sem hyggja á BS-nám í íþrótta- og heilsufræði að uppfylla hæfniviðmið 10. bekkjar í sundi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla.

Þeim umsækjendum sem lokið hafa prófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands er heimilt að ljúka BS-prófi í íþrótta- og heilsufræði með því að ljúka 60 skilgreindum ECTS-einingum (sbr. nánar í kennsluskrá).

Nánari upplýsingar eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra nemenda.

21. gr.  Deild kennslu- og menntunarfræði.

Til að hefja B.Ed.-nám í Deild kennslu- og menntunarfræði skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í B.Ed.-nám í deildinni.

Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra nemenda.

22. gr.  Deild menntunar og margbreytileika.

Til að hefja BA-nám skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá háskólabrú Keilis, háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-nám í deildinni.

Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra nemenda.

Þeim umsækjendum sem lokið hafa prófi frá Þroskaþjálfaskóla Íslands er heimilt að ljúka BA-prófi í þroskaþjálfafræði með því að ljúka 30 skilgreindum ECTS-einingum (sjá nánar í kennsluskrá).

VI. KAFLI  Inntökuskilyrði deilda á Verkfræði- og náttúruvísindasviði.

23. gr.  Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.

Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi, sbr. 1. gr. Fjórða stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóla Íslands) eða Verkmenntaskólanum á Akureyri, lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni eða tölvunarfræðigrunni við háskólagrunn Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Þá skulu önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi teljast sambærileg stúdentsprófi ef sótt er um nám við deildina, enda hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Gerð er krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.

Æskilegur undirbúningur fyrir nám í verkfræði: 40 einingar í stærðfræði og 50 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði. Kostur er að hafa lokið námskeiði í forritun.

Æskilegur undirbúningur fyrir nám í tölvunarfræði: 40 einingar í stærðfræði.

24. gr.  Jarðvísindadeild.

Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi, sbr. 1. gr. Lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni við háskólagrunn Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Gerð er krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.

Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám í jarðfræði: 30 einingar í stærðfræði og 40 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði og 10 einingar í efnafræði.

Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám í jarðeðlisfræði: 30 einingar í stærðfræði og 40 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði.

Æskilegur undirbúningur fyrir nám í jarðeðlisfræði: 35 einingar í stærðfræði.

Undanþágur eru gerðar frá kröfum um einingafjölda ef tilefni þykir til.

Umsækjendur sem hafa brautskráðst með BS- eða BA-próf eða sambærilega háskólagráðu í hvaða grein sem er frá viðurkenndum háskóla uppfylla skilyrði til að innritast í grunnnám í deildinni.

25. gr.  Líf- og umhverfisvísindadeild.

Til að hefja nám í líffræði skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi, sbr. 1. gr. Lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni við háskólagrunn Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Þá skulu önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi teljast sambærileg stúdentsprófi ef sótt er um nám í líffræði, enda hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Gerð er krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.

Æskilegur undirbúningur fyrir nám í líffræði: 30 einingar í stærðfræði og 40 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði, 10 einingar í efnafræði og 10 einingar í líffræði.

Til að hefja nám í land- eða ferðamálafræði skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Lokapróf frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík, háskólabrú Keilis eða háskólagátt Háskólans á Bifröst (enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V) teljast sambærileg stúdentsprófi þegar sótt er um nám í land- eða ferðamálafræði. Þá skulu önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi teljast sambærileg stúdentsprófi ef sótt er um nám í land- eða ferðamálafræði, enda hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum.

26. gr.  Rafmagns- og tölvuverkfræðideild.

Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi, sbr. 1. gr. Fjórða stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóla Íslands) eða Verkmenntaskólanum á Akureyri, lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni eða tölvunarfræðigrunni við háskólagrunn Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Þá skulu önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi teljast sambærileg stúdentsprófi ef sótt er um nám við deildina, enda hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Gerð er krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.

Æskilegur undirbúningur fyrir nám í verkfræði: 40 einingar í stærðfræði og 50 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði.

Umsækjendur um nám í tæknifræði sem stundað hafa nám á framhaldsskólastigi geta öðlast rétt til undanþágu frá framangreindum skilyrðum með því að þreyta stöðumat. Við mat á undanþágubeiðnum er jafnframt tekið mið af starfsreynslu úr atvinnulífinu. Í öllum tilvikum þurfa undanþágur að vera í samræmi við ákvæði sameiginlegra reglna háskólans og nánari ákvarðanir háskólaráðs.

Umsækjendur sem uppfylla skilyrði um undanþágu þurfa að:

  1. Sitja undirbúningsnámskeið í stærðfræði á haustmisseri fyrsta árs.
  2. Ljúka undirbúningsnámskeiðum til að öðlast rétt til áframhaldandi náms á vormisseri fyrsta árs.

27. gr.  Raunvísindadeild.

Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi, sbr. 1. gr. Lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni við háskólagrunn Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Gerð er krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.

Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám í eðlisfræði, efnafræði, hagnýtri stærðfræði, stærðfræði, stærðfræði og stærðfræðimenntun og verkfræðilegri eðlisfræði: 30 einingar í stærðfræði og 40 einingar í náttúrufræðigreinum. Þar af skulu vera minnst 10 einingar í eðlisfræði, 10 einingar í efnafræði og 10 einingar í líffræði.

Æskilegur undirbúningur fyrir nám í eðlisfræði og stærðfræði: 35 einingar í stærðfræði.

Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám í lífefna- og sameindalíffræði: 30 einingar í stærðfræði og 40 einingar í náttúrufræðigreinum.

Æskilegur undirbúningur fyrir nám í lífefna- og sameindalíffræði: 50 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði. Mælt er með góðum undirbúningi í efnafræði, erfðafræði og annarri líffræði.

Undanþágur eru gerðar frá kröfum um einingafjölda ef tilefni þykir til.

Umsækjendur sem hafa brautskráðst með BS- eða BA-próf eða sambærilega háskólagráðu í hvaða grein sem er frá viðurkenndum háskóla uppfylla skilyrði til að innritast í grunnnám í deildinni.

28. gr.  Umhverfis- og byggingarverkfræðideild.

Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi, sbr. 1. gr. Fjórða stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóla Íslands) eða Verkmenntaskólanum á Akureyri, lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni eða tölvunarfræðigrunni við háskólagrunn Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Þá skulu önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi teljast sambærileg stúdentsprófi ef sótt er um nám við deildina, enda hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum. Gerð er krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.

Æskilegur undirbúningur fyrir nám í verkfræði: 30 einingar í stærðfræði og 40 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði.

VII. KAFLI  Setning reglna og gildistaka.

29. gr.  Gildistaka.

Reglur þessar hefur háskólaráð sett á grundvelli tillagna viðkomandi fræðasviða og með vísan til 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla.

Reglurnar öðlast þegar gildi og verður þeim beitt við inntöku nemenda frá og með háskólaárinu 2022–2023. Jafnframt falla úr gildi eldri reglur um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands nr. 319/2009 með áorðnum breytingum, að frátöldum ákvæðum í þeim reglum er varða inntökuskilyrði í Viðskiptafræðideild og Sálfræðideild, sem falla úr gildi að lokinni inntöku nemenda á háskólaárinu 2024–2025.


Háskóla Íslands, 4. mars 2022.