Skip to main content

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. maí 2022 15:00 til 16:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands verða afhent þriðjudaginn 17. maí kl. 15 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans. Viðburðurinn, sem er hluti af Nýsköpunarvikunni 16.-20. maí, er öllum opinn en hann verður jafnframt í beinu streymi.

Veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í fjórum flokkum: Heilsa og heilbrigði, Tækni og framfarir, Samfélag og Hvatningarverðlaun. Auk þess verður sigurvegari keppninnar valinn úr hópi verðlaunahafa úr ofangreindum flokkum.

Verðlaunin, sem hétu áður Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands, eru nú veitt í 24. sinn en keppnin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Árnason|Faktor og Auðnu-tæknitorgs.

Á athöfninni munu nemendur Háskóla Íslands fjalla um verkefni sitt sem hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands í upphafi árs.

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands verða afhent þriðjudaginn 17. maí kl. 15 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans. Viðburðurinn, sem er hluti af Nýsköpunarvikunni, er öllum opinn en hann verður jafnframt í beinu streymi.

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands