Skip to main content

Vinnustofa kennara: Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á ARC-verkefninu

Vinnustofa kennara: Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á ARC-verkefninu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. apríl 2020 10:00 til 12:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

stofa 107

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Brynhildur Anna Ragnarsdóttir og Þórhildur Oddsdóttir halda vinnustofuna Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á ARC-verkefninu, í stofu 107 í Veröld - húsi Vigdísar þann 18. apríl kl. 10-12.

ARC verkefnið byggir á þeirri sannfæringu að kennarar séu kjarninn í því ferli sem á sér stað í tungumálakennslunni. Verkefninu er ætlað að styðja kennara í evrópskum skólum við að nýta sér starfendarannsóknir til að þróa í starfi sínu ígrundun á þeim starfsháttum sem fram fara í kennslustofunni. Lögð er áhersla á aðferðir sem efla fagmennsku þeirra og sjálfstraust. 

Sérhver kennari getur orðið rannsakandi á eigin starfsháttum og ígrundun á þeim. Kennarar verða að geta horft gagnrýnum augum á eigin kennslu, umhverfið, þátttöku nemenda og sjálfa sig. Kennsluhættir þróast einungis með síendurtekinni greiningu.

Sjá nánar: https://www.ecml.at/ECML-Programme/Programme2016-2019/Professionallearningcommunities/tabid/1868/language/en-GB/Default.aspx

Vinnustofan er þátttakendum að kostnaðarlausu og engrar skráningar er krafist. Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Vinnustofur kennara eru samstarfsverkefni Vigdísarstofnunar, STÍL – Samtaka tungumálakennara á Íslandi og Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands. 

facebook

Vinnustofa kennara: Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á ARC-verkefninu

Vinnustofa kennara: Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á ARC-verkefninu