Skip to main content

Ráðstefna University of the Arctic

Ráðstefna University of the Arctic - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. maí 2021 13:00 til 18. maí 2021 18:30
Hvar 

Í Reykjavík og á netinu

Nánar 
Aðgangur ókeypis

UArctic-ráðstefnan fer fram dagana 15. - 18. maí í Reykjavík. Ráðstefnan í ár, sem að þessu sinni er að mestu rafræn, er skipulögð af íslenskum háskólastofnunum sem eru aðilar að University of the Arctic - Háskóla norðurslóða. Setning ráðstefnunnar verður í beinu streymi á vefnum laugardaginn 15. maí kl. 13.

Tilgangur ráðstefnunnar er að leiða saman fræðimenn, sérfræðinga, fulltrúa frumbyggja og ekki síst nemendur til að ræða saman um málefni norðurslóða, efla samvinnu þegar kemur að rannsóknum og stuðla að sjálfbærum lausnum á þeim áskorunum sem svæðið stendur frammi fyrir.

Ráðstefnan er tengd formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu og þar verður lögð sérstök áhersla á loftslagsmál og grænar orkulausnir, íbúa á norðurslóðum og vistkerfi sjávar á svæðinu. Einnig verður hægt að fræðast um mannréttindi, stjórnmál, jafnrétti, öryggismál og margt fleira sem tengist málefnum norðurslóða.

Nemendur eru sérstaklega hvattir til að taka þátt og er þátttaka þeirra gjaldfrjáls.

Fyrir frekari upplýsingar og skráningu smellið hér

UArctic-ráðstefnan fer fram dagana 15. - 18. maí í Reykjavík. Ráðstefnan í ár, sem að þessu sinni er að mestu rafræn, er skipulögð af íslenskum háskólastofnunum sem eru aðilar að University of the Arctic - Háskóla norðurslóða.

Ráðstefna University of the Arctic