Skip to main content

Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu

Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. apríl 2024 12:00 til 14:00
Hvar 

Grótta

Nánar 
Mæting kl. 12 við Gróttu

Við skoðum ýmsar lífverur fjörunnar, grúskum í þanginu og leitum að kröbbum og öðrum smádýrum, greinum þörunga og fleira í skemmtilegri fjöruferð í Gróttu, þar sem er fjölbreytt dýra-, fugla- og plöntulíf.

Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við HÍ og landsfrægur fjörulalli mun leiða gönguna ásamt líffræðinemum við HÍ. Gott er að mæta vel klædd, í stígvélum og með fötur eða glær ílát til að safna hinum ýmsu lífverum. Ekki verra að mæta með stækkunargler. Ekki gleyma nesti.

Hluti af verðlaunaverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.

Mæting: Kl. 12 við Gróttu

Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu