Málþing til heiðurs Anni G. Haugen vegna starfsloka hennar við Félagsráðgjafardeild
Hvenær
3. maí 2019 13:00 til 16:30
Hvar
Norræna Húsið
Nánar
Aðgangur ókeypis
Málþing haldið 3. maí kl. 13-16:30 til heiðurs Anni G. Haugen vegna starfsloka hennar við Félagsráðgjafardeild.
Í tilefni starfsloka Anniar G. Haugen við Félagsráðgjafardeild verður haldið málþing henni til heiðurs föstudaginn 3. maí kl. 13-16:30 í Norræna húsinu.
Á málþinginu verða fluttir fjölbreyttir fyrirlestrar um þróun barnaverndar, rannsóknir og störf Anniar. Málþingsstjórar verða Gunnar Sandholt og Hjördís Hjartardóttir.
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst felagsradgjof@hi.is
Nánari dagskrá verður send út síðar.
Málþing haldið 3. maí kl. 13-16:30 til heiðurs Anni G. Haugen vegna starfsloka hennar við Félagsráðgjafardeild.