Skip to main content

Kennedysyllan - Franska kvikmyndahátíðin

Kennedysyllan - Franska kvikmyndahátíðin - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. febrúar 2019 17:45 til 19:45
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Fyrirlestrarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kennedysyllan

Drama, enskur texti.
Lengd: 94 mín

Leikstjórn: Dominique Cabrera
Eftir samnefndri skáldsögu Maylis de Kerangal.
Leikarar: Lola Créton, Aïssa Maïga, Moussa.

Stúdentsprófin eru fram undan hjá Suzanne, stúlku úr góðri fjölskyldu. Hún slæst í hóp með ungu fólki úr fátækrahverfum Marseille sem mana hvert annað til að stinga sér til sunds fram af syllu við veginn um Kennedyklett.

Strákar og stelpur steypa sér í fagurblátt Miðjarðarhafið, sleppa af sér hömlum, hætta öllu til að lifa hraðar: „Kröftug mynd, úthugsuð og lostakennd um þessa örskotsstund þegar allt er hægt: unglingsárin“ (Les Fiches du Cinéma).

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

facebook

Þetta árið verða þrjár myndir sýndar ókeypis í Veröld – húsi Vigdísar í samstarfi við frönskudeild Háskóla Íslands.

Kennedysyllan (Corniche Kennedy) á þriðjudag 12. febrúar kl.17:45
Swagger eftir Olivier Babinet á miðvikudag 13. febrúar kl.17:45
Strákarnir að austan (Eastern boys) á föstudag 15. febrúar kl. 16:00

Kennedysyllan

Kennedysyllan - Franska kvikmyndahátíðin