Skip to main content

Indland: Kvikmyndagerð og samfélag

Indland: Kvikmyndagerð og samfélag - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. mars 2023 12:00 til 12:45
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Heimasvæði tungumálanna, 2. hæð

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dr. Shilpa  Khatri Babbar, ICCR Chair of Indian Studies/ICCR og  gestakennari í indverskum fræðum við Háskóla Íslands heldur þrjá fyrirlestra undir yfirskriftinni Indland - innsýn í samfélag og menningu.

Þriðji og síðasti fyrirlesturinn nefnist Indversk kvikmyndagerð og samfélag og verður haldinn á Heimasvæði tungumálanna á 2. hæð í Veröld fimmtudagurinn 30. mars kl. 12-12:45. Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um áhrif samfélagsins á birtingarmyndir kyns og kynvitundar í kvikmyndum og öfugt.

Dr. Shilpa Khatri Babbar er félagsfræðingur frá Delhi School of Economics og starfar nú við Vivekananda Institute of Professional Studies við Guru Gobind Singh Indraprastha-háskólann í Nýju Delhi. Akademíska árið 2022-2023 dvelur hún á Íslandi á vegum Indian Council for Cultural Relations (ICCR) og gegnir starfi gestakennara og formanns indverskra fræða við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað við kennslu um 25 ára skeið og það er henni sérstök ánægja að kynna indverska menningu, samfélag og heimspeki utan landsteinanna.

Dr. Shilpa  Khatri Babbar.

Indland: Kvikmyndagerð og samfélag