Femínismi og kynjafræði sem hreyfiafl samfélagsbreytinga í Síle og á Íslandi
Oddi
Stofa 101
Breytingar hafa átt sér stað í sílensku samfélagi undanfarin misseri. Samfélagsbreytingarnar hafa verið leiddar áfram af femínískum aktívistum og snúa meðal annars að baráttu kvenna fyrir umráðarétti yfir eigin líkama.
Á málþinginu verður fjallað um femínisma og kynjafræði sem hreyfiafl samfélagsbreytinga í Síle og á Íslandi.
Amaya Pavez Lizarraga prófessor í lýðheilsuvísindum við Læknadeild USACH og umsjónarkona diplómanáms í kynjasamþættingu, Cecilia Baeza Correa kennari í diplómanámi um kynjasamþættingu við USACH og Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir sérlegur ráðgjafi á skrifstofu Kvenréttindafélags Íslands og fyrrum framkvæmdastýra flytja fyrirlestra á málþinginu.
Auk fyrirlesara taka þátt í pallborði Hólmfríður Garðarsdóttir prófessor í spænsku með áherslu á bókmenntir og menningu Rómönsku Ameríku og Þorgerður J. Einarsdóttir prófessor í kynjafræði.
Fundarstýrur eru Finnborg S. Steinþórsdóttir nýdoktor í kynjafræði og Gyða Margrét Pétursdóttir prófessor í kynjafræði