Skip to main content

Bakslagið í hinsegin baráttunni: Opnun Jafnréttisdaga 2023

Bakslagið í hinsegin baráttunni: Opnun Jafnréttisdaga 2023 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. febrúar 2023 12:00 til 13:00
Hvar 

Streymi

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Bjarni Snæbjörnsson (hann) leikari, skemmtikraftur og rithöfundur og Svandís Anna Sigurðardóttir (hún) sérfræðingur í hinsegin- og kynjajafnréttismálum á Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, opna Jafnréttisdaga þetta árið með samtali um bakslag í hinseginbaráttunni.

Viðburðurinn verður í beinu streymi. Öll velkomin!

https://www.facebook.com/events/1431261810736876

Hvernig birtist bakslagið í hinseginbaráttunni? Hvernig getum við stutt við baráttuna? Er Ísland Hinseginparadís? Hvernig getum við tileinkað okkur kynhlutlaust mál? Hvað er fallegt við hinseginleikann? Hvaða áskorunum standa hinsegin foreldrar frammi fyrir? Þau Svandís og Bjarni ræða þessar spurningar og fleiri, og áhorfendur geta einnig sent inn spurningar meðan á viðburði stendur, með því að setja inn komment í viðburðinn á Facebook.

Þessi viðburður er á vegum samráðsvettvangs jafnréttisfulltrúa háskólanna.
Hægt er að panta táknmálstúlkun á viðburði Jafnréttisdaga með tölvupósti á adstodarmenn@hi.is.

Jafnréttisdagar 2023

Bakslagið í hinsegin baráttunni: Opnun Jafnréttisdaga 2023