Áhugaverður gestur á haustþingi HVS - miðvikudag 9. október
Aðalbygging
Hátíðarsalur
Þing Heilbrigðisvísindasviðs verður haldið miðvikudaginn 9. október kl. 14 -16. Á þinginu verður áhugaverður gestafyrirlesari: Oddvar Skjæveland. Hann er sérfræðingur í undirbúningi og skipulagi bygginga og er þekktur og eftirsóttur fyrirlesari. Oddvar sérhæfir sig í samstarfi um lausnir sem taka mið af góðri líðan fólks á vinnustöðum og hefur starfað fyrir háskóla og aðrar opinberar stofnanir og fyrirtæki.
Oddvar heldur lifandi erindi sem hann kýs að kalla skemmtun og samtal við salinn. Hann talar á áhugaverðan hátt um tækifærin í skipulagsferlinu en einnig þær hindranir sem geta orðið á veginum. Oddvar hefur leitt akademískar rannsóknir á þessu sviði og notið stórra rannsóknastyrkja.
Dagskrá þingsins:
Inga Þórsdóttir prófessor og forseti Heilbrigðisvísindasviðs
Velkomin
Oddvar Skjæveland, gestafyrirlesari
Workspace solutions in transformation: Opportunities and risks in planning
Kaffihlé
Hópavinna
„We shape our buildings thereafter they shape us“ Winston Churchill 1943
Umsjón Oddvar Skjæveland og Hákon Hrafn Sigurðsson
Vinsamlegast skráið ykkur. Hlökkum til að sjá ykkur.
Þing Heilbrigðisvísindasviðs verður haldið miðvikudaginn 9. október kl. 14 -16 í Hátíðarsal Aðalbyggingar HÍ. Á þinginu verður áhugaverður gestafyrirlesari: Oddvar Skjæveland. Hann er sérfræðingur í undirbúningi og skipulagi bygginga og er þekktur og eftirsóttur fyrirlesari. Oddvar hefur starfað fyrir háskóla og aðrar opinberar stofnanir og fyrirtæki og sérhæfir sig í samstarfi um lausnir sem taka mið af góðri líðan fólks á vinnustöðum. Oddvar heldur lifandi erindi sem hann kýs að kalla skemmtun og samtal við salinn. Hann talar á áhugaverðan hátt um tækifærin í skipulagsferlinu en einnig þær hindranir sem geta orðið á veginum.Oddvar hefur leitt akademískar rannsóknir á þessu sviði og notið stórra rannsóknastyrkja.