Skip to main content

Áfangamat Friðborgar Jónsdóttur við Menntavísindasvið

Áfangamat Friðborgar Jónsdóttur við Menntavísindasvið - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. janúar 2020 13:00 til 14:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

K 205

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Áfangamat Friðborgar Jónsdóttur á rannsóknarverkefninu

Building relationships: Working with teachers to support positive transitions for children from diverse backgrounds.

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Friðborg rannsóknarskýrslu sína í stofu K 205 kl. 13:00 – 14:00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Friðborgar. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.

Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Friðborgar Jónsdóttur, þeim: Dr. Jóhannu Einarsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands, meðleiðbeinanda dr. Sue Dockett; utanaðkomandi prófdómurum, dr. Anja Hvidtfeldt Stanek, dósent við University of Southern Denmark, dr. Hönnu Ragnarsdóttur prófessor við Háskóla Íslands. Atli V. Harðarson er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.