Skip to main content

Áfangamat Artem Ingmars Benediktssonar

Áfangamat Artem Ingmars Benediktssonar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. ágúst 2018 10:30 til 11:30
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

K 205

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fimmtudaginn 16. ágúst nk. mun fara fram mat á doktorsverkefni Artem Ingmars Benediktssonar doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er Immigrant students’ experiences of learning environments and teaching methods used in Icelandic universities

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir  Artem Ingmar rannsóknarskýrslu sína í stofu K 205 kl. 10:30 – 11:30 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Artem Ingmars. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.

Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum  Artem Ingmar Benediktssonar, þeim:  dr. Hönnu Ragnarsdóttur, prófessor, á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, meðleiðbeinanda dr. Lise Iversen Kulbrandstad prófessor, Inland Norway University of Applied Sciences; utanaðkomandi prófdómurum, dr. Guðrúnu Geirsdóttur prófessor, Háskóla Íslands, dr. Karin Sandwall, forstöðumaður landsskrifstofu Svíþjóðar þar sem fjallað er um sænsku sem annað tungumál. Atli V. Haraðarsson dósent er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.