Skip to main content
17. desember 2018

Varði doktorsritgerð um tímasetningu landnáms á Íslandi

""

Magdalena Maria E. Schmid hefur varið doktorsritgerð í fornleifafræði við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Archaeological Applications of Radiocarbon Chronologies and Statistical Models: Dating the Viking Age Settlement of Iceland, eða Geislakolstímatal og tölfræðileg líkön í fornleifafræði: Tímasetning  landnáms á Íslandi. Andmælendur verða Philippa Ascough og Fiona Petchey.

Doktorsritgerðin er unnin undir leiðsögn Orra Vésteinssonar, prófessors í fornleifafræði við Sagnfræði- og heimspekideild. Aðrir í doktorsnefnd voru Andrew J. Dugmore, prófessor við Háskólann í Edinborg, Anthony Newton, lektor við sama háskóla og Rachel Wood, sérfræðingur við Oxford-háskóla.

Steinunn J Kristjánsdóttir, deildarforseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnaði athöfninni sem fram fór í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands miðvikudaginn 12. desember.

Um doktorsrannsóknina

Markmið ritgerðarinnar er að bæta nákvæmni og áreiðanleika greininga á söfnum geislakolsaldursgreininga til þess að skilja betur fornleifafræðileg og fornvistfræðileg álitamál á borð við fólksflutninga, landnám, gagnkvæm áhrif manns og umhverfis og viðbrögð samfélaga við loftslagsbreytingum. Þetta skiptir miklu máli því geislakolsgreining er ein mikilvægasta aldursgreiningaraðferðin í forsögulegri fornleifafræði og rannnsóknum á kvartertímabilinu.

""