Skip to main content
11. maí 2022

Varði doktorsritgerð um skáldið Jón Óskar

Varði doktorsritgerð um skáldið Jón Óskar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Guðmundur S. Brynjólfsson hefur varið doktorsritgerð í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist „Ég, sem þreyttur kem frá liðnum vetri“. Um margbrotna stöðu skáldsins og þýðandans Jóns Óskars í íslensku menningarumhverfi.

Andmælendur við vörnina voru Auður Aðalsteinsdóttir, nýdoktor við ROCS, og Haraldur Hreinsson, aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Benedikts Hjartarsonar, prófessors við Íslensku- og menningardeild. Aðrir í doktorsnefnd voru Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor við Íslensku- og menningardeild, og Ólafur Rastrick, dósent í þjóðfræði við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild HÍ.

Gauti Kristmannsson, varaforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 10. maí síðastliðinn. (Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni).

Um rannsóknina

Í rannsókn sinni kannaði Guðmundur stöðu skáldsins og þýðandans Jóns Óskars á íslenskum menningarvettvangi. Höfundarverki Jóns er fylgt eftir frá því hann fer að láta að sér kveða opinberlega á fimmta áratug síðustu aldar og nánast allt þar til hann lést 20. október 1998. Sjónum er beint að því hvernig hann birtist sem arrière-garde höfundur og helstu stíleinkenni hans og fagurfræði eru könnuð. Hugað er að því hvert hann sækir aðferð og fagurfræði og hvernig þessir þættir þróast á höfundarferlinum.

Um doktorinn

Guðmundur S. Brynjólfsson lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, MA-prófi í leiklistarfræðum frá Royal Holloway, University of London, djáknanámi frá Háskóla Íslands og tók vígslu sem djákni árið 2012 en lauk síðar MA-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Guðmundur er rithöfundur og leikskáld en fæst einnig við kennslu og ýmis sérfræðistörf.

Benedikt Hjartarson, Gauti Kristmannsson, Auður Aðalsteinsdóttir, Guðmundur S. Brynjólfsson, Haraldur Hreinsson og Ólafur Rastrick.