Skip to main content
22. nóvember 2022

Varði doktorsritgerð um arkitektamenntun og samfélagsógn

Varði doktorsritgerð um arkitektamenntun og samfélagsógn - á vefsíðu Háskóla Íslands

Massimo Santanicchia hefur varið doktorsritgerð í menningarfræði við Íslensku- og menningardeild og Deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Becoming cosmopolitan citizen architects. A reflection on architectural education in a Nordic-Baltic perspective og fjallar um það hvernig arkitektamenntun getur brugðist betur við ógnum sem steðja að í samtímanum. 

Andmælendur við vörnina voru Hélène Frichot, prófessor við Háskólann í Melbourne, og Katja Tollmar Grillner, prófessor við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Ólafs Páls Jónssonar, prófessors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og aðrir í doktorsnefnd voru Harriet Harriss, prófessor við Pratt Institute í New York, og Jón Ólafsson, prófessor við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.

Gauti Kristmannsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 21. nóvember. (Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni).

Um rannsóknina

Doktorsritgerð Massimos er framlag til umræðunnar um hvernig arkitektamenntun getur brugðist betur við þeim loftslags- og samfélagsógnum sem steðja að í samtímanum. Í rannsókn sinni leitast hann við að skilja og hvetja til þess að heimsborgarahyggja hafi áhrif á arkitektamenntun til að efla félagslegt hlutverk hennar með því að mennta arkitekta sem eru betur búnir undir að glíma við stórar áskoranir. Heimsborgaramenntun í skilningi UNESCO stuðlar að þekkingu, færni, viðhorfum, gildum og hegðun sem eru nauðsynleg til að skapa friðsöm, umburðarlynd, inngildandi, örugg og sjálfbær samfélög; markmið slíkrar menntunar er einnig að móta samstarfsfúsa einstaklinga sem finnst þeir tilheyra hnattrænu samfélagi fólks og annarra vera.

Um doktorinn

Massimo Santanicchia hefur MArch-próf frá IUAV Istituto Universitario di Architettura di Venezia; MA-próf í húsnæðismálum og þéttbýli frá AA Architectural Association, School of Architecture í London og MSc-próf í svæðisbundnum borgarskipulagsfræðum frá LSE London School of Economics and Political Science. Hann er prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands..

Ólafur Páll Jónsson, Gauti Kristmannsson, Katja Tollmar Grillner, Massimo Santanicchia, Hélène Frichot, Ólöf Garðarsdóttir og Jón Ólafsson.
Massimo Santanicchia