Skip to main content
15. september 2020

Tvö ný staðfest COVID-19 smit hjá starfsfólki á háskólasvæðinu

Tvö ný staðfest COVID-19 smit hjá starfsfólki á háskólasvæðinu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, sendi meðfylgjandi orðsendingu til stúdenta og starfsfólks í dag (15. september):

Kæru nemendur og samstarfsfólk. 

Því miður hafa komið upp tvö ný staðfest COVID-19 smit hjá starfsfólki á háskólasvæðinu. 

Smit hefur verið staðfest hjá starfsmanni í Setbergi - húsi kennslunnar og hjá starfsmanni Hámu á Háskólatorgi eins og fram hefur komið í tilkynningu frá Félagsstofnun stúdenta. Starfsmaður í Aðalbyggingu var auk þess greindur um sl. helgi eins og áður hefur komið fram.  

Smitrakningarteymi almannavarna hefur farið rækilega yfir þessi tilvik og sett fólk í sóttkví eftir því sem þurfa þykir til að treysta öryggi allra, starfsfólks og nemenda. Allt starfsfólk Hámu á Háskólatorgi hefur þannig verið sett í sóttkví og veitingastaðnum þar lokað tímabundið. Smitrakningateymi almannavarna metur áhættu viðskiptavina Hámu óverulega og þeir þurfa því ekki að fara í sóttkví. 

Í ljósi stöðunnar er afar eðlilegt að margir séu uggandi og hvet ég ykkur kæru nemendur og samstarfsfólk til að nýta ykkur gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu sem við bjóðum. 

Eins og sakir standa er brýnt að ráðstefnur, málþing og fundir verði alfarið með rafrænum hætti. Verði ekki komist hjá því að hittast skal gæta ítrustu varkárni og helst að bera andlitsgrímur. Þá hvet ég nemendur og starfsfólk eindregið til að fresta eða fella niður allt samkomuhald á háskólasvæðinu. 

Munum að sýna fyllstu ábyrgð hvert og eitt, hugum vandlega að smitvörnum og fylgjum reglum almannavarna til hins ítrasta. Verum heima ef minnstu einkenna verður vart. Í slíkum tilvikum skal leita til heilsugæslu og tilkynna um veikindi til næsta yfirmanns svo unnt sé að upplýsa nemendur og starfsfólk í viðkomandi byggingu.

Ég vil líka hvetja ykkur, kæru nemendur og samstarfsfólk, að hlaða niður smitrakningarappi landlæknis.

Það er vissulega afar leitt að þessi staða sé komin upp en við vitum að þetta er tímabundið og samstaða okkar hefur aldrei verið mikilvægari en nú til að sigur vinnist.

Hugum hvert að öðru og beinum sjónum að því jákvæða í tilverunni. 

Gangi ykkur öllum vel. 

Jón Atli Benediktsson, rektor“
 

""