Skip to main content
22. maí 2019

Team Spark afhjúpaði kappakstursbílinn TS19 - Silfru

""

Team Spark, kappaksturs- og hönnunarlið Háskóla Íslands, tekur þátt í þremur alþjóðlegum Formula Student mótum verkfræðinema, á Ítalíu, Spáni og í Austurríki, með kappakstursbílinn TS19 – Silfru í sumar. Liðið afhjúpaði bílinn á Háskólatorgi í dag að viðstöddu fjölmenni.

Um 40 nemendur hafa komið að smíði bílsins í vetur og m.a. fengið vinnuna metna sem hluta af námi sínu við Háskóla Íslands. Flestir þeirra stunda nám í verkfræði en einnig eru liðsmenn úr stærðfræði, eðlisfræði og stjórnmálafræði. 

Bílinn er rafknúinn en hönnun slíks bíls er mun flóknari en þróun bensínsbíls þar sem mun meiri kröfur eru gerðar til rafmagnsbíla en bensínbíla í Formula Student keppnum. Team Spark smíðar nýjan bíl frá grunni á hverju ári og að sögn Vífils Harðarsonar, framkvæmdastjóra Team Spark, er misjafnt milli ára hversu miklar breytingar eru gerðar á hönnun bílsins. Í fyrra hafi liðið í fyrsta sinn smíðað svokallaðan einbolung (e. monocoque) og slík hönnun hafi einnig orðið fyrir valinu nú. Þá séu í bílnum um 400 skynjarar sem eru tengdir tölvu þannig að liðið geti fylgst með öllum kerfum bílsins í beinni útsendingu. „Það var stórt stökk frá því að smíða grind úr stöngum yfir í einbolung úr koltrefjum. En breytingar af öllum gerðum og stærðum eru mjög eðlilegar og nauðsynlegar í þróunarverkefni eins og hjá Team Spark því við viljum ætíð bæta okkur,“ segir hann.

Stór partur af þróun bílsins felst í öflugu samstarfi við íslensk og erlend fyrirtæki sem að sögn Vífils er ómetanlegt. „Í ár njótum við stuðnings frá 50 fyrirtækjum. Styrkirnir eru liðinu gríðarlega mikilvægir því án þeirra væri Team Spark hreinlega ekki til. Það fer mikill tími, efni og peningar í að hanna og smíða kappakstursbíl og að fá stuðning frá íslenskum og erlendum fyrirtækjum hjálpar liðinu á öllum sviðum verkefnisins. Einnig er það mjög góð reynsla fyrir liðsmenn að kynnast starfsemi og skipulagi mismunandi fyrirtækja á Íslandi,“ segir Vífill.

Lið frá Háskóla hafa tekið þátt í alþjóðlegum hönnunar- og kappakstursmótum háskólanema undir hatti Formula Student allt frá árinu 2011. Fyrstu árin tók liðið þátt í keppni á Silverstone-brautinni í Bretlandi en síðustu sumur hefur liðið spreytt sig á Formula Student mótum á Ítalíu og Spáni og í Austurríki. „Í sumar fer Team Spark til Ítalíu, Austurríkis og Spánar og keppir þar við önnur háskólalið. Þetta er í fyrsta sinn þar sem við stefnum á þrjár keppnir og mun það reyna mikið á liðið en skila sér í enn meiri reynslu að lokum,“ segir Vífill. 

Aðspurður um markmið liðsins á mótunum í sumar segir Vífill að þau séu mörg og snúi að  hinum ýmsu kerfum bílsins. „En almennt ætlum við okkur að bæta gagnasöfnun og röksemdafærslu svo við getum útskýrt betur fyrir dómurum þær ákvarðanir sem voru teknar um hönnun eða framleiðslu bílsins. Svo ætlum við auðvitað að standast öll próf sem bíllinn þarf að komast í gegnum til þess að mega aka á brautunum í mótunum,“ segir Vífill.

Háskóli Íslands óskar Team Spark til hamingju með nýja bílinn og velgengni á mótum sumarsins.

Liðsmenn í Team Spark ásamt glæsikerrunni nýju, TS19 - Silfru.