Skip to main content
14. október 2020

Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur árið 2020. Um er að ræða styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og njóta nemendur við Háskóla Íslands forgangs. Heildarupphæð styrkja er 1.000.000 króna.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi sem falla að markmiðum sjóðsins.

Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til og með 2. nóvember 2020.

Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Hjúkrunarfræðideildar og heimasíðu sjóðsins á sjóðavef HÍ. 

Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna en stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, sem er formaður, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, fulltrúi Ingibjargar R. Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústsdóttir, fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins.

Þetta er í þrettánda sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. 

Ingibjörg R. Magnúsdóttir, stofnandi sjóðsins, er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.

Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna á vefsíðu hans á sjóðavef Háskóla Íslands.

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnar, johannab@hi.is, sími 525-4987/525-4960 og Helga Brá Árnadóttir, verkefnastjóri Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is

Hjúkrunarfræðingar að störfum