Skip to main content
13. mars 2023

Sjö þúsund nýttu sér Vísindavefinn daglega í fyrra

Sjö þúsund nýttu sér Vísindavefinn daglega í fyrra - á vefsíðu Háskóla Íslands

Gestir Vísindavefs Háskóla Íslands flettu að meðaltali 300 þúsund sinnum í svörum vefsins í hverjum mánuði árið 2022. Þetta sýnir ný samantekt vefsins á aðsóknartölum á síðasta ári. Svör um COVID-19, ólígarka og gaslýsingu voru meðal þeirra mest lesnu. 

Alls voru flettingar ársins 2022 rúmlega 3,3 milljónir og heimsóknir um 2,6 milljónir. Það samsvarar um 214 þúsund gestum mánaðarlega. Þessar tölur jafngilda því að í hverri viku hafi um 50 þúsund gestir heimsótt Vísindavefinn. Í aðsóknarmestu vikunum voru heimsóknirnar rétt um 70 þúsund en þegar nemendur og þorri landsmanna fer í sumar- og jólafrí dregst notkunin að öllu jöfnu saman.

Ef sömu tölur eru heimfærðar upp á daga sést að rúmlega 7.000 gestir nýta sér Vísindavefinn að meðaltali daglega og fletta þar rúmlega 9.000 síðum.

Svör um COVID-19, ólígarkaa og gaslýsingu meðal þeirra mest lesnu

Aðsókn á Vísindavefinn hefur verið býsna stöðug og jöfn undanfarin ár. Þó má geta þess að Vísindavefurinn fann vel fyrir aukinni umferð í heimsfaraldri COVID-19. Á þeim tíma var leitast við að sinna sérstaklega vísindamiðlun á mannamáli um flókin nútímavísindi sem tengdust faraldrinum. Ljóst er að fjölmiðlar og allur almenningur nýtti sér svör Vísindavefsins til að afla sér þekkingar á faraldrinum og til þess að skilja betur hvaða upplýsingar skiptu máli og hverjar ekki. Vinnuhópur þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19 leitaði meðal annars sérstaklega eftir samstarfi við Vísindavefinn í þessu skyni. Eldgos í Geldingadölum og jarðskjálftavirkni áður en gosið hófst hafði einnig markverð áhrif á umferð um Vísindavefinn árið 2021.

Að lokum má nefna að yfirleitt dreifist lestur notenda Vísindavefsins á fjölmörg svör hvern einasta dag ársins. Eins og gefur að skilja eru sum svör þó meira lesin en önnur. Þannig er hægt greina að einhverju leyti hvers konar fróðleik flestir lesendur sækjast eftir hverju sinni. Hér fyrir neðan er til gamans birtur listi yfir fimm mestu lesnu svör ársins 2022:

Daglegar heimsóknir gesta Vísindavefsins árið 2022.