Skip to main content
20. desember 2019

Opnunartími skrifstofu Hugvísindasviðs um jól og áramót

Síðasti opnunardagur skrifstofu Hugvísindasviðs í Aðalbyggingu Háskóla Íslands fyrir jól er 20. desember en opnað verður að nýju fimmtudaginn 2. janúar kl. 10:00. Starfsfólk Hugvísindasviðs óskar ykkur gleðilegra jóla með þökkum fyrir samstarfið á árinu.

Athygli er vakin á að Þjónustuborð á Háskólatorgi verður opið 23., 27. og 30. desember kl. 10-16.

Byggingar Háskóla Íslands verða opnar sem hér segir um jól og áramót:

  • 21. desember - opið 08:00 - 17:00.
  • 23. desember - 08:00 - 18:00 nema Háskólatorg til 19:00.
  • 24. - 26. desember - lokað.
  • 27. desember - opið 08:00 - 18:00.
  • 28. desember - opið 08:00 - 17:00.
  • 30. desemeber - opið 08:00 - 18:00.
  • 2. - 3. janúar - opið 08:00 - 18:00 nema Háskólatorg til 19:00.
  • 4. janúar - opið 08:00 - 17:00.

Í þeim byggingum sem almennur opnunartími er styttri en hér fyrir ofan þá gildir sá tími.