Skip to main content
1. nóvember 2023

Ný rannsóknarstofa íþrótta- og heilsufræði opnuð með pompi og prakt

  Ný rannsóknarstofa íþrótta- og heilsufræði opnuð með pompi og prakt - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ný og öflug rannsóknarstofa í íþrótta- og heilsufræði var opnuð þann 31. október í Laugardalnum þar sem námsbraut í íþrótta- og heilsufræði hefur aðsetur. Fjöldi hagaðila úr íþróttahreyfingunni, háskólasamfélaginu og mennta- og barnamálaráðuneyti var þar samankominn.Rannsóknarstofan er búin fjölda nýrra rannsóknartækja sem stórauka möguleika til mælinga og rannsókna á líkamlegu atgervi íþróttafólks og almennings en búnaðurinn er eins og hann gerist bestur hjá fremstu íþróttaliðum og -þjóðum heims. Milos Petrovic, lektor við Menntavísindasvið og forstöðumaður rannsóknarstofunnar, kynnti hinn nýja búnað og þau tækifæri sem felast í rannsóknarstofunni fyrir íþróttahreyfinguna, afreksíþróttafólk, almenning og þær mælingar og þar með framlag til rannsókna felst í rannsóknarstofunni. Þórdís Lilja Gísladóttir, forseti Deildar heilsueflingar, íþrótta-, og tómstunda við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, stýrði opnunarviðburðinum og segir opnun rannsóknarstofunnar fela í sér byltingu í íþróttamælingum hér á landi.

„Við í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands fögnum þessari byltingu sem nýi tækjabúnaðurinn felur í sér og gerir okkur kleift að mæla með nákvæmum hætti fjölda þjálfunarþátta, s.s. þol, styrk, liðleika, hraða, fimi, tækni og taktík í öllum íþróttum auk mælinga á almenningi. Sérfræðingar okkar á sviði íþróttamælinga munu stýra rannsóknum, mælingum og veita þjálfunarráðgjöf út frá niðurstöðunum. Rannsóknastofan opnar enn fremur óteljandi möguleika til mælinga og rannsókna fyrir nemendur í íþrótta- og heilsufræði við HÍ sem tengjast námi þeirra og lokaverkefnum. Við erum tilbúin í víðtækt samstarf við íþróttahreyfinguna, líkamsræktargeirann, skóla og sjúkraþjálfara um mælingar á öllum sviðum hreyfingar. Rannsóknarstofan jafnast því á við það besta sem gerist í heiminum í dag.“

Auk þeirra ávörpuðu samkomuna rektor Háskóla Íslands, Jón Atli Benediktsson, og Óskar Þór Ármannsson, skrifstofustjóri í mennta- og barnamálaráðuneyti og staðgengill ráðherra, og Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ kynnti nýjar áherslur í afreksmálum, Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, hélt sömuleiðis ávarp. Þá stýrði Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, formlegri opnun rannsóknarstofunnar.

Myndir: Gunnar Sverrisson.

Óskar Þór Ármannsson skrifstofustjóri í mennta- og barnamálaráðuneyti, Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands klippa á borðann við opnun rannsóknarstofunnar.
Þórdís Lilja Gísladóttir, forseti Deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á við Háskóla Íslands.
Dr. Milos Petrovic, forstöðumaður rannsóknarstofunnar
Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ
Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Opnun rannsóknarstofu íþrótta- og heilsufræði