Skip to main content
23. október 2019

Námsstyrkir til blindra og sjónskertra stúdenta við HÍ

""

Stjórn Þórsteinssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er í fyrsta lagi að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Í öðru lagi er markmið sjóðsins að efla rannsóknir sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum.

Umsóknarfrestur er til 11. nóvember 2019.

Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra eða sjónskertra stúdenta sem stunda nám við Háskóla Íslands á skólaárinu 2019-2020.

Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er að hámarki 500 þúsund krónur.

Í umsókn um námsstyrki þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
1.    Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
2.    Helstu atriði úr náms- og/eða starfsferli umsækjanda og námsárangur í framhaldsskóla eða háskóla eftir því sem við á.
3.    Hvaða nám viðkomandi stundar við Háskóla Íslands.
4.    Meðmæli frá kennurum og/eða atvinnurekendum.
5.    Áætlun um námsframvindu.

Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is.

Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn Þórsteinssjóðs áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.

Tilkoma Þórsteinssjóðs hefur aukið möguleika blindra og sjónskertra stúdenta til að helga sig háskólanámi. Þetta er í áttunda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en veittir hafa verið tuttugu og tveir námsstyrkir til nemenda við Háskóla Íslands og tveir styrkir til rannsóknarverkefnis. 

Um sjóðinn

Þórsteinssjóður var stofnaður við Háskóla Íslands 6. desember 2006 af Blindravinafélagi Íslands til minningar um Þórstein Bjarnason stofnanda Blindravinafélagsins. Tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins að efla líf blindra og sjónskertra einstaklinga á Íslandi.

Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna á sjóðavef Háskóla Íslands. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnastjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894. 

 

Háskólatorg