Skip to main content
24. júní 2015

Nærri þrjátíu afreksnemar hljóta styrki til náms við HÍ

Stjórn Afreks- og hvatningarsjóðs stúdenta Háskóla Íslands úthlutaði í dag styrkjum til 27 afburðanema sem hafa innritað sig til náms við skólann í haust. Nemarnir, sem koma úr þrettán skólum víðs vegar að á landinu, tóku við styrkjunum á Háskólatorgi. 

Þetta er í áttunda sinn sem styrkir eru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands en markmið sjóðsins er að styrkja efnilega nýnema til náms við Háskóla Íslands. Hver styrkur nemur 300 þúsund krónum en auk þess verður greitt skrásetningargjald fyrir styrkþegana sem er 75 þúsund krónur. Samanlögð styrkupphæð nemur því rúmum tíu milljónum króna.

Nemendurnir sem tóku við styrkjum í dag hafa allir náð eftirtektarverðum árangri á stúdentsprófi en við val á styrkhöfum er einnig litið til annarra þátta, eins og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að veita styrki til nýnema sem sýnt hafa fram á sérstakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar aðstæður. 

Alls barst 71 umsókn um styrk að þessu sinni og hafa þær aldrei verið fleiri. Umsóknirnar voru líkt og oft áður afar góðar og reyndist verk stjórnar sjóðsins því mjög vandasamt. Í hópi styrkþeganna 27, sem hefja munu nám við Háskóla Íslands í haust, eru níu dúxar og semidúxar í framhaldsskólum á síðustu árum. Þessir tilvonandi nemendur Háskóla Íslands sækjast eftir inngöngu í sextán ólíkar námsleiðir. Sextán konur og ellefu karlar eru í hópnum.

Styrkhafarnir eru: Ásthildur Lára Stefánsdóttir, Bára Kristín Björgvinsdóttir, Brynhildur Ásgeirsdóttir, Daði Þór Þjóðólfsson, Eiður Örn Gunnarsson, Gunnlaugur Helgi Stefánsson, Herdís Hergeirsdóttir, Hulda Hrund Björnsdóttir, Huy Van Nguyen, Jóhann Ragnarsson, Jón Hlöðver Friðriksson, Jón Pálsson, Kristín Björg Bergþórsdóttir, Kristófer Kristinsson, Rósa Ingibjörg Tómasdóttir, Sara Líf Magnúsdóttir, Sigríður Diljá Vagnsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Sigurjón Már Ólason, Snædís Rán Hjartardóttir, Sóley María Nótt Hafþórsdóttir, Sólrún Hedda Benedikz Hermannsdóttir, Sólveig Bjarnadóttir, Sólveig Rún Samúelsdóttir, Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir, Tryggvi Unnsteinsson og Valentin Oliver Loftsson. 

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands var stofnaður árið 2008. Sjóðurinn hefur veitt alls 155 styrki frá upphafi og eru styrkirnir í ár veittir með stuðningi Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og Happdrættis Háskóla Íslands. Stjórn sjóðsins skipa

Þórdís Kristmundsdóttir formaður, Róbert H. Haraldsson og Sæunn Stefánsdóttir.

Nánari upplýsingar um styrkhafana 27.

Styrkþegar Afreks- og hvatningarsjóðs ásamt stjórn sjóðsins, rektor Háskóla Íslands og forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands. MYND/Arnaldur Halldórsson
Styrkþegar Afreks- og hvatningarsjóðs ásamt stjórn sjóðsins, rektor Háskóla Íslands og forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands. MYND/Arnaldur Halldórsson