Skip to main content
13. janúar 2015

Mikill velunnari Háskóla Íslands fallinn frá

Einn af mestu velunnurum Háskóla Íslands á síðustu árum, Bent Scheving Thorsteinsson, lést á Landspítalanum 7. janúar sl. á 93. aldursári.

Bent Scheving Thorsteinsson var fæddur þann 12. janúar 1922. Hann var sonur Guðrúnar Sveinsdóttur og Þorsteins Schevings Thorsteinssonar lyfsala. Fyrstu æviárin ólst Bent upp í Danmörku hjá dönskum fósturforeldrum en um níu ára aldur fluttist hann hingað til lands þar sem hann ólst upp með móður sinni og eiginmanni hennar, Óskari Þórðarsyni barnalækni, sem gekk Bent í föðurstað. Bent átti síðar ágæt samskipti við föður sinn.

Bent hóf nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands árið 1943. Hann lagði síðan stund á nám í hagfræði og lauk prófi frá The Whorton School of Finance and Commerce í Bandaríkjunum. Bent kynntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Margaret Scheving Thorsteinsson, í Bandaríkjunum og eignuðust þau sjö börn. Bent vann lengst af hjá Rafmagnsveitum ríkisins, bæði sem innkaupastjóri og sem fjármálastjóri. Hann lét sig ýmis velferðar- og félagsmál varða og var m.a. skátaforingi og formaður sóknarnefndar Dómkirkjunnar. Auk þess var Bent annt um rannsóknir og vísindi og gaf hann háar fjárhæðir til stofnunar styrktarsjóða við Háskóla Íslands og Landspítalann.  

Bent Scheving var í mun að gefa til baka til samfélagsins af því sem hann hafði aflað sér. Hann var mikill áhugamaður um vísindarannsóknir og þekkingarsköpun og hefur verið velgjörðarmaður Háskóla Íslands frá síðustu aldamótum. Samtals hefur Bent fært skólanum 60 milljónir króna til stuðnings vísindum og rannsóknum og hefur féð runnið til stofnunar þriggja sjóða sem heyra undir Styrktarsjóði Háskólans. Scheving-sjóðirnir hafa veitt ungum vísindamönnum ómetanleg tækifæri til rannsókna við Háskóla Íslands en samtals hafa verið veittir fjörutíu styrkir til rannsókna úr sjóðunum.

Styrktarsjóðir á borð við þá sem Bent stofnaði eru mjög mikilvægir, ekki síst fyrir unga vísindamen sem eru að hasla sér völl. Sjóðirnir eru ein af forsendum þess að ungir vísindamenn geti sótt um styrki í stórum erlendum samkeppnissjóðum. Við slíkar umsóknir er nauðsynlegt að sýna fram á að mótframlag hafi komið í formi fjárstuðnings ásamt því að niðurstöður rannsóknanna hafi verið birtar í ritrýndum vísindatímaritum.

Það hefur verið rannsóknarstarfi Háskóla Íslands mikil lyftistöng að eiga jafn mikinn velunnara og Bent Scheving Thorsteinsson og vill háskólinn þakka Bent og eiginkonu hans fyrir einstakan stuðning í gegnum tíðina. Sjóðirnir munu halda minningu Bents á lofti um ókomin ár.

Sjóðirnir sem Bent Scheving Thorsteinsson og eiginkona hans Margaret stofnuðu við Háskóla Íslands eru:

Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar barnalæknis (2000). Markmið hans er að veita verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir, ritgerðir og skylda starfsemi á sviði barnalækninga.

Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Schevings Thorsteinssonar (2001). Markmið sjóðsins er að veita verðlaun fyrir vísindaleg afrek og styrkja rannsóknir og framhaldsnám í lyfjafræði.

Styrktarsjóður Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar (2001). Markmið sjóðsins er að standa fyrir rannsóknum á einelti og kanna allar lagalegar og siðferðilegar leiðir til að fyrirbyggja einelti og bæta fyrir afleiðingar þess.

Bent Scheving Thorsteinsson, mikill velunnari Háskóla Íslands, en samtals hefur hann fært Háskóla Íslands 60 milljónir króna til stuðnings vísindum og rannsóknum og hefur féð runnið til stofnunar þriggja sjóða.
Margaret og Bent Scheving Thorsteinsson með styrkhöfum úr Verðlaunasjóði Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteinssonar árið 2013 en sjóðurinn veitir viðurkenningar fyrir vísindaleg afrek og rannsóknir í lyfjafræði. Styrkhafarnir eru doktorsnemarnir Eydís Einarsdóttir, Elena Ukhatskaya og Priyanka Sahariah.
Frá afhendingu styrks í Norræna húsinu 2013. Á myndinni eru hjónin og stofnendur Scheving-sjóðanna þau Margaret og Bent Schevnig Thorsteinsson ásamt Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands.
Bent Scheving Thorsteinsson og Margaret ásamt styrkhöfum úr Verðlaunasjóði Óskars Þórðarsonar í júní 2013 en sjóðurinn veitir viðurkenningar fyrir vísindaleg afrek og rannsóknir í barnalækningum. Í efri röð frá vinstri eru þau Þórður Þórkelsson, Ingibjörg Georgsdóttir og Þórólfur Guðnason.
Margaret og Bent Scheving Thorsteinsson á góðri stundu en þau stofnuðu þrjá styrktarsjóði við Háskóla Íslands.