Skip to main content
28. maí 2019

Meistaranemar kynna lokaverkefni sín á málþingi

Fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntavísinda verða kynntar á málþingi meistaranema sem fram fer í Háskóla Íslands 29. maí nk. frá kl. 9-15. Þar munu M.Ed.- og MA-nemar sem útskrifast í júní flytja stuttar kynningar á lokaverkefnum sínum í 24 málstofum.

Meðal þess sem fjallað verður um er fjölmenning í tónlistarkennslu, hreyfingu og stærðfræði, starfsánægju kennara, yngstu börnin og upplýsingatækni, rafrænt einelti, matarsóun, þróun útikennslu, íþróttaiðkun íslenskra ungmenna, táknmál og margt fleira. 

Mikill vöxtur hefur verið í framhaldsnámi við Menntavísindasvið undanfarin ár en sviðið menntar kennara fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa.

Ókeypis er á málþingið og er það öllum opið. 

Viðburðurinn á Facebook

Dagskrá málþingsins og nánari upplýsingar um einstaka málstofur má finna HÉR. 