Skip to main content
8. júní 2023

Leiðsögunemar slógu í gegn sem ljósmyndarar

Leiðsögunemar slógu í gegn sem ljósmyndarar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Leiðsögunám er meðal þeirra námsleiða sem Endurmenntun HÍ hefur boðið upp á undanfarin 15 ár enda sígild og sívinsæl. Á vorin er ávallt farið í útskriftarferð hringinn í kringum Ísland undir öruggri leiðsögn Guðmundar Björnssonar, leiðsögumanns og aðjunkts í ferðamálafræði við HÍ, sem hefur yfirumsjón með náminu.

Markaðsdeild EHÍ, í samráði við verkefnastjóra námsins, efndi til ljósmyndasamkeppni meðal ferðalanganna. Það gekk alveg glimrandi vel og fjölda fallegra mynda var deilt á sameiginlegri Facebook síðu-hópsins í ferðinni. Myndirnar áttu ýmist að lýsa náminu, stemningunni eða náttúrufegurðinni.

Veitt voru verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti. Hlutskarpastur var Sigfús Þ. Sigmundsson, Díana Mjöll Sveinsdóttir í öðru sæti og Jón Óskar Sólnes í þriðja.

Myndir úr ferðinni er að finna á vef Endurmenntunar

Vakin er athygli á því að frestur til að sækja um í þetta áhugaverða og skemmtilega nám hefur verið framlengdur til 26. júní.

Allar upplýsingar um námið er að finna hér.

Fólk á ferðamannastað