Skip to main content
20. mars 2019

Hlutu hvatningarviðurkenningar á Nýsköpunarmóti Álklasans

Álbíll

Fjórir háskólanemar fengu hvatningarviðurkenningar á vel sóttu Nýsköpunarmóti Álklasans í Hátíðasal Háskóla Íslands í gær. Snjallvæðing, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið voru ofarlega á baugi í þeim erindum sem flutt voru á mótinu og endurspegluðust þær áherslur í þeim nemendaverkefnum sem fengu viðurkenningu. Í tengslum við mótið var fyrsti álbíllinn sem smíðaður var frá grunni hér á landi til sýnis við Aðalbyggingu Háskólans. 

Það var Guðbjörg Óskarsdóttir, framkvæmdarstjóri Álklasans, sem afhenti verðlaunin og vakti af því tilefni máls á hugmyndagátt á heimasíðu Álklasans, þar sem háskólanemar geta sótt hugmyndir að verkefnum. 

Nemendurnir sem fengu hvatningarviðurkenningar í ár eru:   

  • Caroline Mary Medion, nemi við Háskólann í Reykjavík: Improving Current Efficiency in L-T Aluminum Electrolysis with Vertical Inert Electrodes. 
  • Diljá Heba Petersen, nemi við Háskóla Íslands: Endurnýtingarmöguleikar slaggs frá kísiljárnframleiðslu. 
  • Eymar Andri Birgisson, nemi við Háskólann í Reykjavík: Sjálfvirknivæðing á kerviðgerðum með tölvusjón. 
  • Hinrik Már Rögnvaldsson, nemi við Háskóla Íslands: Flokkunarmódel planaðrar áltöku. 

Að hvatningarviðurkenningunni standa fyrirtækin, Mannvit, Efla, Hamar, Snókur, Rio Tinto, Alcoa Fjarðaál, Norðurál og Landsbankinn en auk þess bjó Álverið í Garðabæ, sem sérhæfir sig í yfirborðsmeðhöndlun á áli, til álviðurkenningarskildi handa viðurkenningarhöfum. 

Í kaffihléi á gafst gestum færi á því að bera íslenska álbílinn Ísar augum en hann var frumsýndur á Nýsköpunarmóti Álklasans fyrir tveimur árum síðan og hefur nú tekið miklum breytingum. 

Álklasinn var stofnaður árið 2015 en að honum standa 40 fyrirtæki og stofnanir sem tengjast ál- og kísiliðnaði. Þetta er í þriðja sinn sem Nýsköpunarmót Álklasans er haldið en að því standa Álklasinn, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök iðnaðarins og Samál. 

Handhafar hvatningarviðurkenningar Álklasans ásamt fulltrúum nokkurra styrktaraðila: Frá vinstri: Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir (Álklasinn), Gunnar Sv. Gunnarsson Mannviti,  Brjánn Jónsson, faðir Diljár Hebu Petersen (HÍ), Einar Friðgeirsson (Norðuráli), Brynjar Baldursson (Eflu), Caroline Mary Medino (HR), Sigurður Magnús Garðarsson (HÍ),  Eymar Andri Birgisson (HR), Rannveig Rist (Rio Tinto), Hinrik Már Rögnvaldsson (HÍ), Magnús Þór Jónsson (Alcoa Fjarðaál),  Adrian Freyr Rodriguez (Hamar).
Frá vinstri: Brjánn Jónsson, faðir Diljár Hebu Petersen (HÍ), Caroline Mary Medino (HR), Eymar Andri Birgisson (HR), Hinrik Már Rögnvaldsson (HÍ).