Skip to main content
7. júní 2018

Greindi öll tiltæk dýrabein úr íslenskum víkingaaldarkumlum

Rúnar Leifsson hefur varið doktorsritgerð í fornleifafræði við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands sem nefnist Ritual Animal Killing and Burial Customs in Viking Age Iceland. Andmælendur voru Anne Pedersen, fornleifafræðingur við Þjóðminjasafn Danmerkur, og James Morris, lektor við University of Central Lancashire. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Orra Vésteinssonar, prófessors í fornleifafræði og aðrir í doktorsnefnd voru Anne Karin Hufthammer og Neil Price. Það var Svavar Hrafn Svavarsson, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar, sem stjórnaði athöfninni sem fram fór í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 29. maí síðastliðinn. (Hér má sjá myndir frá vörninni).

Um rannsóknina

Rannsóknin grundvallast á greiningu allra tiltækra dýrabeina úr íslenskum víkingaaldarkumlum. Með því er ljósi varpað á dráp og greftrun dýra á grafreitum víkingaaldar hérlendis. Gögn frá öllum kumlateigum landsins, sem og úrtak frá Noregi, eru endurskoðuð á gagnrýnin hátt með það fyrir augum að draga fram einkenni þessara siða og setja þá í félagslegt og sögulegt samhengi. Rannsókin er framlag til aukins skilnings á þróun íslensks samfélags á 10. öld.

Um höfundinn

Rúnar Leifsson lauk B.A.-prófi í fornleifafræði við Háskóla Íslands árið 2004 og MSc.-prófi í zooarchaeology við University of York árið 2005. Á námstímanum hlaut hann doktorsnemastyrk frá Rannsóknarsjóði Rannís og hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands meðfram námi. Þá sat hann eitt misseri við Universitetet i Bergen og hefur auk þess stundað rannsóknir á Íslandi, í Noregi og í Bretlandi. Hann starfar nú hjá Minjastofnun Íslands.