Skip to main content
30. september 2020

Framtíðin er núna – tökum þátt í að skapa hana!

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, sendir meðfylgjandi orðsendingu ráðstefnugestum á Menntakviku. 

„Kæru ráðstefnugestir.

Líf okkar allra og aðgengi að námi og menntun hefur tekið stakkaskiptum vegna heimsfaraldurs COVID-19. Menntakerfi um allan heim hafa þurft að laga sig að breyttum aðstæðum í skóla- og frístundastarfi vegna þeirrar takmarkana sem baráttan við kórónaveiruna hefur valdið. Vitað er að skólaganga mörg hundruð milljóna barna og ungmenna um heim allan hefur raskast verulega á árinu 2020. Börnin og unglingar hafa jafnframt orðið af dýrmætum tækifærum til að umgangast jafnaldra og vini og taka þátt í skipulögðu frístundastarfi. 

Á sama tíma má segja að það hafi orðið bylting í starfsháttum allra skólastiga á örskotsstundu þegar fyrsta bylgja kófsins skall á síðastliðið vor. Ótrúleg aðlögunarhæfni, samvinna ólíkra fagstétta og notkun á stafrænni tækni og miðlun kom því til leiðar að hægt var að halda skólastarfi gangandi. Þetta gerðist ekki að sjálfu sér heldur lögðumst við öll á árarnar. Markmiðið var að tryggja velferð allra einstaklinga og halda takti í samfélaginu gangandi. Þetta verður áfram erindi okkar næstu mánuði og ár.

Menntakvika er að þessu sinni tileinkuð Alþjóðlegum degi þroskaþjálfa sem er haldinn hátíðlegur víða um heim föstudaginn 2. október. Þroskaþjálfafræði er ein af mörgum námsleiðum og fræðigreinum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Störf þroskaþjálfa grundvallast á virðingu fyrir mannlegri reisn og sjálfræði sérhvers einstaklings. Þroskaþjálfar styðja einstaklinga til virkrar þátttöku á öllum sviðum samfélagsins, meðal annars í menntakerfinu og í skólum. Því miður benda fyrstu niðurstöður á áhrifum samkomubanns og COVID-19 til þess að börn sem standa höllum fæti, svo sem vegna fötlunar, þjóðernis eða félagslegrar stöðu, hafi orðið fyrir neikvæðari áhrifum heimsfaraldursins en önnur börn. Rannsóknir á sviði þroskaþjálfafræða beinast ekki hvað síst að því að þróa aðferðir til að gera öllum kleift á að vera virkir þátttakendur í samfélaginu.

Á þeim umbrotatímum sem við nú lifum er þýðingarmikið að taka ákvarðanir sem byggjast á þekkingu og innsæi í félagslegan veruleika. Við höfum fylgst með fremstu vísindamönnum heims rannsaka og ræða gerð kórónuveirunnar, rýna í smitleiðir og legga mat á áhrif veirunnar á fólk. Mannleg hegðun og breytileiki milli einstaklinga er einn mesti óvissuþátturinn. Menntarannsóknir gegna því hlutverki að varpa ljósi á þau margþættu öfl sem móta þroska og nám hvers einstaklings. Ég hef þá trú að einlæg þekkingarleit og hógvær en staðföst barátta fyrir því að skilja heiminn betur sé lykillinn að farsælla samfélagi. Með því að gera öllum kleift að þroska hæfni sína og færni, óháð aldri, kyni, þjóðerni og/eða fötlun, rennum við styrkari stoðum undir samfélagið.

Kórónuveirufaraldurinn er á vissan hátt áminning náttúrunnar til mannkyns, áminning um að við erum hluti af náttúrunni og verðum að vernda hana og virða. Stóru spurningarnar sem við stöndum frammi fyrir eru þessar: Munum við taka lífshætti okkar til raunverulegrar endurskoðunar eða falla aftur í fyrra far? Munum við nýta þann lærdóm sem kófið hefur fært okkur til að efla menntakerfið okkar?

Menntakvika leiðir saman á hverju ári fjölda fagfólks og hagsmunaaðila sem láta sig menntun og menntavísindi varða. Ráðstefnan er lifandi vettvangur miðlunar, upplýsinga og samráðs á sviði menntunar. Þekking og þróun á því sviði er lykillinn að því að skapa farsælt og sjálfbært samfélag, samfélag jöfnuðar og samfélag þar sem draumar rætast. Innan menntakerfisins eru öfl sem geta ýmist stutt við nám og þroska eða skapað hindranir á lífsleið einstaklinga. Við verðum að skilja þessu öfl betur og draga þau fram í dagsljósið.

Fræðimenn, fagfólk og sérfræðingar miðla nýjustu niðurstöðum og tjá sig um stöðu mála. Meðal þeirra spurninga sem leitað verður svara við eru:

Hvaða lærdóm telja kennarar og fagfólk að megi draga af áhrifum kófsins á skóla- og frístundastarf? Hvernig getur menntakerfið stuðlað að félagslegu réttlæti? Hvernig má skipuleggja samvinnunám og félagsleg samskipti í stafrænu námsumhverfi? Hvað hefur áhrif á svefn, næringu og heilsu ungmenna? Hvernig má efla áhuga og bæta árangur nemenda í íslensku og læsi, stærðfræði og vísindagreinum? Af hverju skiptir miklu máli að auka svigrúm fyrir listir og sköpun í skólastarfi? Hver eru hin fjölbreyttu viðfangsefni þroskaþjálfafræðinnar? Og síðast en ekki síst, hvert er hlutverk þroskaþjálfa í að stuðla að virkri þátttöku allra í skóla og samfélagi án aðgreiningar? 

Spennandi og fjölbreytt dagskrá bíður þátttakenda en flutt verða um 340 erindi í 87 málstofum. Allar upplýsingar má nálgast á vef Menntakviku.

Framtíðin er núna – tökum þátt í að skapa hana!

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ“

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ. MYND/ Kristinn Ingvarsson