Skip to main content
24. apríl 2019

Framhaldslíf evrópskra listamanna

Great Immortality: Studies on European Cultural Sainthood er titill á nýútkomnu greinasafni sem Jón Karl Helgason, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Marijan Dović, sérfræðingur við Stofnun slóvenskra bókmennta og bókmenntafræða, ritstýra en útgefandi er Brill.

Í bókinni er að finna umfjöllun tuttugu höfunda um fjölbreytilegt framhaldslíf evrópskra listamanna, einkum þjóðskálda, í menningarlegu minni og pólitísku lífi innan einstakra ríkja. Í flestum tilvikum er lögð áhersla á helgifestu menningarlegra þjóðardýrlinga á 19. og 20. öld en þarna má einnig finna umfjöllun um ítalska miðaldahöfunda á borð við Dante og yfirstandandi tilraunir Spánverja til að gera katalónska arkitektinn Gaudi að opinberum dýrlingi kaþólsku kirkjunnar.

Bókin er óbeint framhald af bókinni National Poets, Cultural Saints,sem þeir Jón Karl og Marijan sendu frá sér á árinu 2017. Báðar bækurnar eru hluti af ritröðinni National Cultivation of Culture (12. og 18. bindi ) sem hollenski bókmenntafræðingurinn Joep Leerssen ritstýrir en hann er meðal þeirra sem eiga grein í Great Immortality. Meðal annarra höfundar er Simon Halink sem fjallar um þjóðardýrlinginn Snorra Sturluson. Formála bókarinnar skrifa Marko Juvan og Sveinn Yngvi Egilsson en með ritstjórum bókarinnar lögðu þeir grunninn að þeim rannsóknum sem þessar tvær bækur eru ávöxtur af.

Upplýsingar um bókina á vef Brill.

Great Immortality: Studies on European Cultural Sainthood