Áfengis- og vímuefnamál - Örnám


Áfengis- og vímuefnamál
Örnám á framhaldsstigi – 30 einingar
Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir sérhæfða þekkingu og færni á sviði áfengis- og vímuefnamála. Nemendur fá fræðilega og hagnýta þekkingu um málefni einstaklinga með áfengis- og vímuefnaröskun og áhrifin sem það getur haft á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi.
Skipulag náms
- Haust
- Áfengis- og vímuefnamál I: Stefnumótun, þverfagleg nálgun og skilgreiningar
- Vor
- Áfengis- og vímuefnamál II: Meðferðarlíkön, forvarnir og vinnulag með einstaklingum með áfengis- og vímuefnaröskun
- Aðferðir í fjölskyldumeðferðarvinnu einstaklinga með áfengis- og vímuefnaröskun
Áfengis- og vímuefnamál I: Stefnumótun, þverfagleg nálgun og skilgreiningar (FRG119F)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á félagslegum, sálfræðilegum og læknisfræðilegum þáttum áfengis- og vímuefnaneyslu og þróun áfengis- og vímuefnaröskunar. Fjallað er um skimun, greiningarlíkön og einkenni vímuefnaröskunar, auk þess sem gerður er samanburður á samfélagslegum og menningarlegum þáttum áfengis- og vímuefnaneyslu.
Jafnframt er fjallað um hlutverk stefnumótunar og löggjafar í tengslum við forvarnir og meðferðarúrræði, með áherslu á þverfaglegt samstarf og hvernig áfengis- og vímuefnaröskun getur þróast með ólíkum hætti hjá mismunandi hópum.
Námskeiðið er kennt í tveimur þriggja daga staðlotum. Skyldumæting er í lotur.
Áfengis- og vímuefnamál II: Meðferðarlíkön, forvarnir og vinnulag með einstaklingum með áfengis- og vímuefnaröskun (FRG228F)
Námskeiðið fjallar um áfengis- og vímuefnamál sem þverfaglegt fræðasvið og miðar að því að nemendur öðlist þekkingu á beitingu gagnreyndra aðferða í meðferð og þjónustu við ólíka hópa. Fjallað er um helstu einkenni vímuefnaröskunar, bataferli einstaklinga með vímuefnaröskun og fallþróun.
Áhersla er lögð á að dýpka skilning nemenda á málefnum fólks með vímuefnaröskun og efla hæfni þeirra til að vinna í þverfaglegu samstarfi að velferðarmálum þessa hóps.
Námskeiðið er kennt í tveimur staðlotum, þrjá daga í senn. Skyldumæting er í lotur.
Aðferðir í fjölskyldumeðferðarvinnu einstaklinga með áfengis- og vímuefnaröskun (FRG231F)
Námskeiðið fjallar um áhrif áfengis- og vímuefnaröskunar einstaklings á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi. Kynntar eru helstu rannsóknir, kenningar og meðferðarnálganir í fjölskyldumeðferð og í vinnu með einstaklingum og fjölskyldum sem búa við áfengis- og vímuefnaröskun.
Jafnframt er fjallað um tengsl áfengis- og vímuefnaneyslu við heimilisofbeldi, sem og streitutengda andlega og líkamlega heilsuvanda aðstandenda.
Námskeiðið er kennt í tveimur staðlotum á misseri, þrjá daga í senn. Skyldumæting er í lotur.
Hafðu samband
Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500
Netfang: nemFVS@hi.is
Opið virka daga frá 09:00 - 15:00
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs
Félagsráðgjafardeild á samfélagsmiðlum

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.