Skip to main content

Við kynnum prófessor - Sigurbergur Kárason

Við kynnum prófessor - Sigurbergur Kárason - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. maí 2021 15:00 til 16:00
Hvar 

Læknagarður

343

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þann 6. maí flytur Sigurbergur Kárason, prófessor í gjörgæslu- og svæfingalækningum við Læknadeild Háskóla Íslands, fyrirlestur í tilefni af framgangi sínum í stöðu prófessors.

Yfirskrift fyrirlesturins:

Á ferð um furður gjörgæslu og svæfinga

Fyrirlesturinn fer fram í stofu 343 í Læknagarði (hámark 25 pers.) og í streymi: https://eu01web.zoom.us/j/69788490395

Á Heilbrigðisvísindasviði er haldið upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum.

Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar.
Allir velkomnir

Þann 6. maí flytur Sigurbergur Kárason, prófessor í gjörgæslu- og svæfingalækningum, fyrirlestur í tilefni af framgangi sínum.

Við kynnum prófessor - Sigurbergur Kárason