Skip to main content

Doktorsvörn í sagnfræði: Grégory Cattaneo

Doktorsvörn í sagnfræði: Grégory Cattaneo - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. janúar 2022 14:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 21. janúar 2022 fer fram doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Þá ver Grégory Cattaneo doktorsritgerð sína í sagnfræði, Les communautés d’habitants dans l’Islande médiévale (XIe-XIIIe siècles). Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 14:00. Vegna fjöldatakmarkana verður hægt að fylgjast með vörninni í streymi með því að smella hér.

Andmælendur við vörnina verða dr. Corinne Péneau, dósent í miðaldasögu við Université Paris-Est Créteil, og dr. Lena Rohrbach, prófessor í miðaldafræðum við Universität Basil.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Viðars Pálssonar, dósents við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Torfi H Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, og dr. Dominique Barthélemy, prófessor við L‘université Paris-Sorbonne (Paris-IV). Helgi Þorláksson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, leiðbeindi doktorsefni í upphafi.

Steinunn Kristjánsdóttir, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnar athöfninni, sem fer fram á ensku.

Um rannsóknina

Í ritgerð Grégorys er sett fram ný túlkun á íslensku miðaldasamfélagi með því að horfa á það í gegnum prisma samfélags (e. community) eða félagsheildar. Með því að beita hugtökum og hugmyndum sagnfræðinga sem fjallað hafa um samfélög Vestur-Evrópu á miðöldum með sambærilegum hætti, og með ítarlegri athugun á varðveittum heimildum, er dregin upp mynd af því hvernig Íslendingar mynduðu samfélög og hvernig þau störfuðu á elleftu, tólfu og þrettándu öld. Með innleiðingu tíundar tóku þessar félagsheildir að starfa mjög eftir því sem sóknarsamfélög gerðu annars staðar í Vestur-Evrópu. Um 1100 má merkja breytingu á staðbundnu samfélagi þar sem stærri landeigendur þróuðu með sér höfðingjavald yfir landi og samfélagi þess. Á umræddu tímabili var íslenskt samfélag flókið og hægt er að skoða það jafnt út frá fremstu mönnum, bændum eða fátækum, þ.e. út frá lóðréttum tengslum, láréttum tengslum eða samhjálp (góðgerðum).

Um doktorsnefnið

Grégory Cattaneo er með BA-próf í sagnfræði frá Université d‘Orléans, MA-próf í sagnfræði frá Paris IV Sorbonne og MA-próf í íslenskri miðaldafræði frá Háskóla Íslands. Hann stefnir á að verja doktorsritgerð í fornnorrænum fræðum í École pratique des Hautes Études í París (Sorbonne) árið 2023. Hann er nú að undirbúa nýdoktorsverkefni við HÍ um AM 279a 4to  – Þingeyrabók. 

Grégory Cattaneo.

Doktorsvörn í sagnfræði: Grégory Cattaneo